Skip to main content

Nöfn og menningararfur: Frédéric Giraut

Nöfn og menningararfur: Frédéric Giraut - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. maí 2026 9:30 til 10:30
Hvar 

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Frédéric Giraut, UNESCO-prófessor í inngildandi örnefnafræði „Naming the World“ við háskólann í Genf, heldur opinn fyrirlestur, „The Contradictions between Contemporary Place-(re)Naming Imperatives: Standardisation, Inclusiveness, Heritagisation, Branding,“ á 51. ráðstefnu NORNA (Norræn samvinnunefnd um nafnarannsóknir) . 

Haldið í fyrirlestrasal Eddu, þriðjudaginn 19. maí kl. 9:30. Verið öll velkomin.

Nöfn og menningararfur er yfirskrift ráðstefnu NORNA sem fer fram dagana 19.–21. maí í Eddu. Hún er skipulögð af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í samstarfi við Málvísindastofnun Háskólans og Nafnfræðifélagið. Sjá upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar

Á meðan ráðstefnunni stendur halda tveir boðsfyrirlesarar erindi sem verða opin almenningi, Frédérics Giraut og Birna Lárusdóttir. Fyrirlestur Birnu verður haldinn í fyrirlestrasal Eddu, fimmtudaginn 21. maí kl. 9:00.

NORNA eru samtök norrænna fræðimanna sem stunda rannsóknir á nöfnum. Tilgangur samtakanna er að efla og hvetja til nafnfræðirannsókna á Norðurlöndunum og til samstarfs norrænna fræðimanna.

Frédéric Giraut, UNESCO-prófessor í inngildandi örnefnafræði „Naming the World“ við háskólann í Genf.

Nöfn og menningararfur: Frédéric Giraut