Hvenær
19. maí 2026
09:30 til 10:30
Hvar

Edda

Fyrirlestrasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Frédéric Giraut, UNESCO-prófessor í inngildandi örnefnafræði „Naming the World“ við háskólann í Genf, heldur opinn fyrirlestur, „The Contradictions between Contemporary Place-(re)Naming Imperatives: Standardisation, Inclusiveness, Heritagisation, Branding,“ á 51. ráðstefnu NORNA (Norræn samvinnunefnd um nafnarannsóknir) .

    Haldið í fyrirlestrasal Eddu, þriðjudaginn 19. maí kl. 9:30. Verið öll velkomin.

    Nöfn og menningararfur er yfirskrift ráðstefnu NORNA sem fer fram dagana 19.–21. maí í Eddu. Hún er skipulögð af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í samstarfi við Málvísindastofnun Háskólans og Nafnfræðifélagið. Sjá upplýsingar á heimasíðu ráðstefnunnar.

    Á meðan ráðstefnunni stendur halda tveir boðsfyrirlesarar erindi sem verða opin almenningi, Frédérics Giraut og Birna Lárusdóttir. Fyrirlestur Birnu verður haldinn í fyrirlestrasal Eddu, fimmtudaginn 21. maí kl. 9:00.

    NORNA eru samtök norrænna fræðimanna sem stunda rannsóknir á nöfnum. Tilgangur samtakanna er að efla og hvetja til nafnfræðirannsókna á Norðurlöndunum og til samstarfs norrænna fræðimanna.

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil