Hvenær
31. október 2025 til 1 nóvember 2025
08:00 to 17:00
Hvar

Saga

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Ráðstefnan New Frontiers um flóttafólk og hælisleitendur þar sem lögð er sérstök áhersla á reynslu barna og ungmenna verður haldin í Sögu, nýju húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands dagana 31. október og 1. nóvember 2025.

    Skráning er opin til 24. október nk. Skráðu þig hér!

    Verð: 230 Evrur

    Verð fyrir doktorsnema: 110 Evrur

    Á ráðstefnunni verður sjónum beint að reynslu og upplifun flóttafólks um allan heim.

    Skipuleggjendur ráðstefnunnar eru þverfaglegt teymi fræðimanna sem hlaut Öndvegisstyrk frá Rannsóknasjóði (Rannís) til að rannsaka reynslu flóttafólks frá Sýrlandi og Írak, sem kom til landsins á árunum 2016–2021. Í rannsókninni er athygli sérstaklega beint að börnum og ungmennum. Meðal viðfangsefna rannsóknarinnar eru menntun, annarsmálsfræði og tungumálanám, vellíðan, samfélagslegt net, traust og aðgengi að úrræðum og þjónustu. Hér er heimasíða verkefnisins.

    Við hvetjum sérstaklega skólastjórnendur, kennara, fræðafólk og alla þá aðila sem vinna með málefni tengd flóttafólki og hælisleitendum að skrá sig á ráðstefnuna.

    Nánari upplýsingar: https://newfrontiers.hi.is

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil