Gimli
Stofa 139
- Aðgangur ókeypis
Heiti ritgerðar:
Samanburður á vatnsafli og jarðhita til raforkuframleiðslu: Heildstæð rannsókn sem felur í sér lífsferilsgreiningu og mat á umhverfistengdum lífsferilskostnaði vatnsafls í Tansaníu og jarðhita í Kenía
Nemandi:
Jacqueline Colleta D Mwakangale
Doktorsnefnd:
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir prófessor í Umhverfis- og auðlindafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ (umsjónarkennari)
Dr. David Cook aðjunkt í Umhverfis- og auðlindafræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ (leiðbeinandi)
Dr. Ólafur Ögmundarson, prófessor í Matvæla- og næringafræðideild á Heilbrigðisvísindasviði HÍ (sérfræðingur í doktorsnefnd)
Ágrip:
Umskipti orkukerfa yfir í lág- kolefna og endurnýjanlega orkugjafa líkt og lögð er áhersla á í Parísarsamkomulaginu og með Sjálfbærnimarkmiðum Sameinuðu Þjóðanna, þurfa að grundvallast á vísindamiðuðum, fjölþátta rannsóknum. Slíkar rannsóknir þurfa að taka til greina bæði umhverfislega sjálfbærni og efnahagslega hagkvæmni framleiðslugetu. Vatnsafl og jarðvarmi eru mikilvægar endurnýjanlegar orkuauðlindir. Þær geta veitt grunnorku, nýting þeirra getur verið hagkvæm og leiðir í flestum tilvikum til minni beinnar losunar gróðurhúsalofttegunda (GHL) en jarðefnaeldsneyti. Hins vegar getur nýting þessara orkuauðlinda leitt til meiri óbeinnar losunar gróðurhúsalofttegunda og valdið öðrum neikvæðum áhrifum sem geta haft áhrif fjárfestingar og félagslega velferð. Að einblína einungis á losun gróðurhúsaloftegunda hefur þau áhrif að minna er horft til annara umhverfisáhrifa. Þessi rannsókn notar samþættan aðferðafræðilegan ramma sem sameinar lífsferilsgreiningu og lífsferilstengt kostnaðarmat þar sem umhverfisáhrif eru tekin til greina til að meta kerfisbundið frá vöggu til grafar vatnsafls- og jarðvarmaorkuver í Tansaníu og Kenía. Greiningin fylgir ISO 14040/14044 stuðlunum til að magngreina umhverfisáhrif. Samhliða því mati er lífsferilstengdur heildarkostnaður metinn, þar á meðal fjárfestingar, rekstrar- og viðhaldskostnaður, auk umhverfiskostnaðar. Rannsóknin gerir því mögulegt að leggja mat á bæði jákvæð og neikvæð samlegðaráhrif umhverfis, og kostnaðartengdra þátta með samþættri samanburðargreiningu. Niðurstöðunum er ætlað að styðja við betur upplýsta ákvarðanatöku varðandi þróun á notkun vatnsafls og jarðvarmaauðlinda til framleiðslu rafmagns í Tansaníu, að styðja við að þjóðir nái að uppfylla markmið Parísarsamkomulagsins og að auka þekkingu á sjálfbærri orkuþróun.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!