Gimli
- Aðgangur ókeypis
Heiti ritgerðar:
Hringrásarhagkerfið: Hvar, hvað og hví?
Nemandi:
Guðmundur Steingrímsson
Doktorsnefnd:
Dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í Umhverfis- og auðlindafræði
Dr. Jón Geir Pétursson, prófessor í Umhverfis- og auðlindafræði
Ágrip:
Hringrásarhagkerfið: Hvar, hvað og hví? Hvað er hringrásarhagkerfið og hvar er það að finna? Hver er tilgangur þess? Hvernig má meta styrk þess og efla það til framtíðar? Í fyrirlestrinum eru kynntar rannsóknir úr doktorsverkefni þar sem fjallað er um hringrásarhagkerfið bæði sem framtíðarsýn og sem fyrirliggjandi veruleika. Sjónum er beint að því hvernig ýmiss konar hringrásir birtist í efnahagslífi og samfélagi, hvernig megi greina og mæla styrk þeirra og hvaða tækifæri séu til að efla þær. Rannsóknin tengir þannig saman skilning á því hvað hringrásarhagkerfið er, greiningu á birtingarmyndum þess og hvernig hægt er að nota hringrásarhagkerfið sem best til að kljást við þær umhverfislegu áskoranir sem framundan eru.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!