Hvenær
13. janúar 2023
13:00 til 15:00
Hvar

VR-II

Stofa 152

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Meistaranemi: Magnús Magnússon

    Heiti verkefnis: Sjálfvirk flokkun á undirsvæðum heilastofns út frá segulómmyndum með djúpu tauganeti
    ___________________________________________
    Leiðbeinandi: Lotta María Ellingsen, dósent við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ

    Einnig í meistaranefnd: Magnús Örn Úlfarsson, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild HÍ

    Prófdómari: Hafsteinn Einarsson, lektor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild HÍ

    Ágrip

    Um 5 − 8% af einstaklingum eldri en 60 ára þjást af heilabilun. Með auknum lífslíkum má gera ráð fyrir að þessi hópur muni stækka. Heilabilun verður því ein stærsta lýðheilsufræðilega áskorun 21. aldarinnar. Einkenni heilabilunar eru oft afar ósértæk, sérstaklega í upphafi þar sem fyrstu einkenni eru mjög svipuð milli mismunandi sjúkdóma. Mismunagreining er því flókin með núverandi greiningaraðferðum. Segulómmyndir af heila virðast spila lykilhlutverk í mismunagreiningu, þar sem fjöldi sjúkdóma sýnir sértæk ummerki í vissum heilastöðvum. Progressive supranuclear palsy (PSP) og multiple system atrophy (MSA) eru hrörnunarsjúkdómar sem sýna einkennandi hrörnun á undirsvæðum heilastofnsins. Þessa sértæku hrörnun er mikilvægt að rannsaka, svo hægt sé að greina sjúkdómana snemma, en snemmgreining er nauðsynleg fyrir lyfja- og meðferðarþróun. Við höfum þróað myndgreiningaraðferð sem merkir sjálfvirkt undirsvæði heilastofnsins, þ.e. miðheili, pons (brú), mænukylfa og efri hnykilstoðir (SCP), af segulómmyndum af heila. Aðferðin tvinnar saman fjölatlasa myndflokkun og djúpu tauganeti, til að merkja heilasvæðin hratt og nákvæmlega. Samanburður við handmerktar myndir og aðrar myndflokkunaraðferðir, bendir til þess að aðferðin sé harðgerð, nákvæm og afar hraðvirk. Okkar markmið er að aðferðin geti borið kennsl á sértæka hrörnun af völdum PSP og MSA, fyrr en áður hefur verið mögulegt.

    1920_KRI_jafnrettisskolinn_200522_038.jpg
    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil