Hvenær
11. október 2026
12:00 til 14:00
Hvar

Bílastæðið við Búrfellsgjá

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Halldór Geirsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands, leiðir fræðslugöngu Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna um Búrfellsgjá á sunnudaginn kemur, þann 11. október. Ferðafélag barnanna er angi innan Ferðafélags Íslands sem fagnar hundrað ára afmæli á næsta ári.

Ferðin í Búrfellsgjá er því frábært tækifæri til að fá mann sem hefur verið nánast í kviku viðburðanna á Reykjanesi undanfarin ár til að segja frá því hvernig Ísland hefur mótast – og hvernig landið er enn að mótast fyrir augunum á okkur.

Við ætlum að sjá fyrir okkur eldgos fortíðarinnar og fræðast um hvernig landið á svæðinu mótaðist í eldsumbrotum.

Mikilvægt er að klæða sig vel, vera í góðum skóm og taka með gott nesti.

Verið öll velkomin, þátttaka ókeypis. Ekkert að panta, bara mæta!

Mæting
Gangan hefst kl. 12 á bílastæðinu við Búrfellsgjá í Heiðmörk og stendur til kl. 14.

Með fróðleik í fararnesti: Eldfjallaferð í Búrfellsgjá
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil