Saga
S-114
- Aðgangur ókeypis
Þriðja málþing Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) verður haldið miðvikudaginn 4. nóvember í Sögu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands.
Á málþinginu verða kynntar nýjar niðurstöður rannsóknarinnar. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig rannsóknargögn ÍÆ hafa nýst sveitarfélögum og öðrum opinberum aðilum við stefnumótun og forgangsröðun farsældarþjónustu fyrir börn og ungt fólk.
Málþinginu verður jafnframt streymt hér
Dagskrá málþingsins verður birt síðar.
Takið daginn frá – öll hjartanlega velkomin!
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!