Norræna húsið
- Aðgangur ókeypis
Landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga býður, í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands, til opins kynningarfundar í Norræna húsinu þriðjudaginn 3. nóvember kl. 15–16. Fundinum verður einnig streymt.
Á fundinum verður kynnt nýtt fyrirkomulag við samantekt og mat á vísindalegri þekkingu í loftslagsmálum á Íslandi og rætt um þátttöku stofnana, vísindasamfélagsins og annarra sérfræðinga í þeirri vinnu. Landsnefndin er skipuð af umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu og í henni situr fólk úr ólíkum áttum.
Nýlega var samþykkt að þrír vinnuhópar, skipaðir af ráðuneytinu, annist matið. Fyrirkomulagið byggir á nálgun vinnuhópa IPCC og tekur við af fyrri samantektum vísindanefndar um loftslagsbreytingar, sem gaf síðast út skýrslu árið 2023. Vinnan er unnin af þremur vinnuhópum vísindafólks sem saman leggja grunn að heildstæðu mati á stöðu loftslagsmála á Íslandi.
Meginsvið hópanna eru:
- Loftslag og loftslagsbreytingar
- Áhrif, aðlögun og viðkvæmni
- Samdráttur í losun og aukin binding
Á kynningarfundinum verður einnig fjallað um hlutverk og samsetningu landsnefndarinnar, sem er skipuð af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og leidd af Veðurstofu Íslands.
Fundurinn er opinn öllum áhugasömum. Boðið verður upp á kaffiveitingar að fundi loknum og þátttakendur hvattir til að staldra við og eiga samtal um fyrirhugað starf.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!