Edda
Athugið: Viðburðurinn átti að fara fram 26. mars síðastliðinn en var frestað vegna veðurs. Ný tímasetning er 8. apríl kl. 17.
Vinafélög Gljúfrasteins og Árnastofnunar bjóða upp á viðburð í Eddu miðvikudaginn 8. apríl kl. 17 í tilefni útgáfuafmælis Íslandsklukkunnar en lokabindið Eldur í Kaupinhafn kom út árið 1946.
- Tómas Ævar Ólafsson rekur upphaf bókaklúbbsins Aldrei las ég Laxness.
- Þær Fjóla Gerður Gunnarsdóttir og Hildur Ýr Ísberg segja frá upplifun sinni af verkinu.
- Lilja Nótt Þórarinsdóttir bregður sér í hlutverk Snæfríðar Íslandssólar.
- Félagar í leikhópnum Elefant segja frá uppsetningu sinni á verkinu og flytja valdar senur.
Halldór Guðmundsson, höfundur ævisögu Halldórs Laxness, stýrir viðburðinum.
Léttar veitingar á kaffihúsinu Ými að viðburði loknum.
Öll velkomin.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!