Hvenær
27. október 2026
16:00 til 17:00
Hvar

Árnagarður

Stofa 303

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Agnar Tómas Möller, meistaranemi í sagnfræði við Háskóla Íslands, flytur erindið „Lánsfjárleitir og erlent lánsfjármagn á Íslandi á millistríðsárunum“ í málstofu um félags- og hagsögu á vegum Sagnfræðistofnunar HÍ. Haldið í stofu 303 í Árnagarði, 27. október kl. 16:00-17:00.

Um fyrirlesturinn

Í erindinu verður fjallað um lánsfjárumleitanir og þróun erlendra skulda Íslands á millistríðsárunum (1918–1939) með sérstakri áherslu á fjórða áratuginn. Rakin verður þróunin frá því að Danir voru helstu lánardrottnar Íslendinga yfir til mikilvægra fjárhagstengsla við Bretland, einkum í kjölfar falls Íslandsbanka árið 1930.

Rýnt verður í afstöðu erlendra lánveitenda til Íslands og hvernig lánstraust landsins byggðist ekki eingöngu á efnahagslegum mælikvörðum heldur einnig á persónulegum tengslum íslenskra ráðamanna og bankastjóra við erlenda fjármálamenn. Þá verður reynt að varpa ljósi á hlutverk erlends lánsfjár í nútímavæðingu íslensks atvinnulífs og uppbyggingu innviða sem og samspil lánsþarfar, milliríkjasamskipta og alþjóðastjórnmála á tímabilinu.

Lánsfjárleitir og erlent lánsfjármagn á Íslandi á millistríðsárunum
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Hugvísindasvið

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil