Hvenær
19. febrúar 2026
20:00 til 21:30
Hvar
Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    STUTT-rannsóknastofa í smásögum og styttri textum heldur áfram með kvöldstundir með smávinum í Gunnarshúsi. Höfundar og þýðendur fjalla um verk sín og/eða þýðingar og lesa valda texta. Megin markmið þessara stunda er að skapa tækifæri til að kynnast ólíkum stuttum bókmenntatextum, gömlum og nýjum, og verða fróðari um þá, hvort sem þeir kallast örsögur, smáprósar, prósaljóð eða annað. Einnig að njóta samveru við upplestur og umfjöllun verkanna. Kvöldin eru skipulögð út frá þemum. Að þessu sinni verður efni kvöldsins: Að skrifa stutt.

    Gestir fá tækifæri til að bera fram spurningar og bregðast við upplestri og umfjöllun. Boðið verður upp á kaffi og kleinur. Verið hjartanlega velkomin!

    Umsjón hafa Kristín Guðrún Jónsdóttir og Ásdís R. Magnúsdóttir

    Haldið í Gunnarshús, Dyngjuvegi 8, Reykjavík, fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20:00-21:30.

    Dagskrá:

      Að skrifa stutt

      • Þórarinn Eldjárn: Dreymt bert
      • Sigurbjörg Þrastardóttir: Mæður geimfara
      • Birta Þórhallsdóttir: Einsamræður
      • Gyrðir Elíasson: Langbylgja
      Efnisorð
      Ábyrgðaraðili

      Deila

      Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

      Var efnið hjálplegt?

      Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

      Takmarkað við 250 stafabil