Hvenær
15. október 2026
17:30 til 18:30
Hvar

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 007

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Hvers vegna hefur ríki sem ekki liggur að Norður-Íshafi áhuga á heimskautarannsóknum, rússnesku jarðgasi og samstarfi á norðurslóðum? Jósteinn Kristjánsson segir frá umsvifum Kína á Svalbarða, við norðurströnd Rússlands og hér á Íslandi. Með myndum og dæmum skoðar hann hverju Kínverjar sækjast eftir, hvað þeir geta þegar gert og hvar þeir eru háðir samstarfi við aðra. Vísindi, viðskipti og stórveldapólitík leiða okkur að spurningu sem stendur okkur nær: Hvað vill Ísland fá út úr þessu sambandi og hvert er svigrúm okkar til að velja? Ekki þarf sérþekkingu á efninu og að erindinu loknu gefst tækifæri til spjalls.

Erindið verður flutt á ensku í Veröld - húsi Vigdísar, stofu 007, 15. okt. kl.17:30. Léttar veitingar – verið velkomin.
Kínversk-íslenska menningarfélagið og Konfúsíusarstofnunin Norðurljós.

Um fyrirlesarann

Jósteinn Kristjánsson er MA-nemi í alþjóðasamskiptum, rannsóknarfélagi við NAADSN og verkefnastjóri hjá Fulbright-stofnuninni á Íslandi. Hann er með BA-próf í kínverskum fræðum og hefur búið og stundað nám í Kína. Í rannsóknum sínum vinnur hann með heimildir á kínversku, rússnesku, íslensku og ensku. Áhugi hans beinist meðal annars að Kína, Rússlandi, stjórnmálum norðurslóða og svigrúmi smáríkja til athafna.

Kína horfir norður: Hagsmunir, áhrif og norðurslóðir
Efnisorð
Ábyrgðaraðili

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil