Háskólatorg
- Aðgangur ókeypis
- Sigurbjörn Bernharðsson, prófessor í fiðluleik við Oberlin háskóla í Ohio-ríki
- Þórunn Ósk Marinósdóttir, leiðari víóludeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
- Sigurður Bjarki Gunnarsson, sellóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands
Þríeykið mun flytja brot úr sjaldheyrðum strengjatríóum eftir Gideon Klein (samið 1944) og Alfred Schnittke (samið 1985) og kynna tónskáldin. Viðburðurinn er í aðdraganda tónleika Kammermúsíkklúbbsins sunnudaginn 25. október kl 16:00 í Hörpu, en þar verða einnig flutt dúó eftir Jón Nordal og strengjakvintett eftir Johannes Brahms.
Kammermúsíkklúbburinn hefur verið helsti vettvangur fyrir kammertónlist á Íslandi í hartnær 70 ár og er klúbbnum ánægja að bjóða starfsfólki og nemendum Háskóla Íslands upp á stuttan tónlistarflutning í hádeginu.
Nánari upplýsingar á kammer.is
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!