Hvenær
3. október 2026
14:00 til 17:00
Hvar

Edda

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Í tilefni af því að vefurinn Ísmús á 25 ára afmæli í ár heldur Árnastofnun í samstarfi við Félag þjóðfræðinga á Íslandi málþing í Eddu laugardaginn 3. Október.

Þar munu stíga á stokk fræðafólk, tónlistarfólk, kennarar og fleiri sem hafa komið að uppbyggingu vefsins eða nýtt hann í störfum sínum og sköpun.

Vefurinn Ísmús er samstarfsverkefni Árnastofnunar, Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og Tónlistarsafns Íslands. Þar má finna upplýsingar um tónlistarsögu Íslands og upptökur úr þjóðfræðisafni Árnastofnunar. Auk þess er Ísmús heimili fyrir gagnagrunnana Sagnagrunn, Ævintýragrunn og óðfræðivefinn Braga.

Í lok málþingsins verður efnt til afmælisveislu með tónlistaratriði.

Dagskrá

14–14.50

Jón Hrólfur Sigurjónsson. Tónlistarsafn Íslands

Terry Gunnell, Sagnagrunnur

Hlé

15.05–16

Þóra Marteinsdóttir, tónmennta- og tónfræðikennari, kórstjóri og tónskáld, Kársnesskóli

Pétur Grétarsson, útvarpsmaður og slagverksleikari

Júlíana Þóra Magnúsdóttir þjóðfræðingur

Þorgerður E. Sigurðardóttir dagskrárgerðarmaður, Rás 1

Dagrún Jónsdóttir og Jón Jónsson þjóðfræðingar, Sauðfjársetur á Ströndum

Ísmús í aldarfjórðung: stefnumót fræða, lista og almennings
Efnisorð
Ábyrgðaraðili

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil