Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsal
- Aðgangur ókeypis
Málstofa um Evrópska tungumálagagnasvæðið á Íslandi
13. nóvember 2026, kl. 9.00–15.15
Auðarsalur í Veröld – húsi Vigdísar, Háskóli Íslands
Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista og CLARIN-IS bjóða til málstofu um Evrópska tungumálagagnasvæðið (e. European Language Data Space).
Málstofan er ætluð sérfræðingum og starfsfólki fyrirtækja, háskóla, opinberra stofnana, fjölmiðla, bókasafna og skjalasafna, sem og nemendum og öllum sem hafa áhuga á íslensku, máltækni og gervigreind.
Viðburðurinn er haldinn í tengslum við dag íslenskrar tungu.
Dagskráin fer að hluta fram á íslensku og að hluta á ensku.
Aðgangur er ókeypis en skráning er nauðsynleg hér.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Dagskrá
8.30–9.00 Skráning og kaffi
9.00–9.05 Ávarp Silju Báru R. Ómarsdóttur, rektors Háskóla Íslands
9.05–9:15 Inngangsorð Sofiyu Zahova, forstöðumanns Vigdísarstofnunar
9.15–9.35 Ávarp framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins: Stafræn Evrópa og sameiginlegt evrópskt tungumálagagnasvæði
Mateusz Szoturma, DG CONNECT, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
9.35–9.55 Bandalag um máltækni (ALT-EDIC)
Edouard Geoffrois, framkvæmdastjóri ALT-EDIC
9.55–10.15 Evrópska tungumálagagnasvæðið: Uppbygging markaðar fyrir tungumálagögn og þjónustu og ávinningur af evrópsku samstarfi
Kossay Talmoudi, LDS/ELDA
Umræðustjóri: Sofiya Zahova, Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar
10.15–10.30 Kaffihlé
10.30–11.20 Innviðir, rannsóknir og nýsköpun
Steinþór Steingrímsson, CLARIN-IS og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Katrín Jónsdóttir, Rannís
Eiríkur Smári Sigurðarson, Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista / DARIAH
Umræðustjóri: Þórhallur Eyþórsson, prófessor í málvísindum við Háskóla Íslands
11.20–12.00 Mállíkön fyrir lítil tungumál: tækifæri, hindranir og samstarf
Þátttakendur í pallborði: Linda Heimisdóttir (Miðeind) og Tabea de Wille (Háskólinn í Limerick)
Umræðustjóri: Steinþór Steingrímsson
12.00–12.50 Hádegishlé
12.50–13.30 Gagnasöfnun, aðgangur og miðlun: réttindi og ábyrgð
Þátttakendur í pallborði: Atli Jasonarson (Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum), Iris Edda Nowenstein (Háskóli Íslands), Kristín Lena Þorvaldsdóttir (Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra) og Lára Herborg Ólafsdóttir (LEX)
Umræðustjóri: Anton Karl Ingason, prófessor við Háskóla Íslands
13.30–14.00 Tungumálagögn og þjónusta: íslenskar lausnir og þarfir
Anna Björk Nikulásdóttir, Grammatek
Eydís Huld Magnúsdóttir, Tiro
Kári Örlygsson, Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins
Umræðustjóri: Helga Svala Sigurðardóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
14.00–14.20 Kaffihlé
14.20–15.00 Tungumálagögn, fjölmiðlar, bókasöfn og skjalasöfn
Þátttakendur í pallborði: Helga Lára Þorsteinsdóttir (RÚV), Karl Blöndal (Morgunblaðið), Magný Rós Sigurðardóttir (Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn) og Unnar Ingvarsson (Þjóðskjalasafn Íslands)
Umræðustjóri: Eiríkur Smári Sigurðarson
15.00–15.15 Samantekt og næstu skref (Eiríkur Smári Sigurðarson).
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!