Árnagarður
Stofa 303
- Aðgangur ókeypis
Ragnar Árnason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands, flytur erindið „Hvað kostaði einokunarverslunin Íslendinga?“ í málstofu um félags- og hagsögu á vegum Sagnfræðistofnunar HÍ. Haldið í stofu 303 í Árnagarði, 13. október kl. 16:00-17:00.
Um fyrirlesturinn
Árið 1602 innleiddi danska ríkisvaldið yfirgripsmikið kerfi einokunarverslunar við og á Íslandi sem stóð í megindráttum óbreytt næstu 250 ár eða til 1854. Sagnfræðingar virðast sammála um að þessi verslunareinokun hafi verið veigamikill þáttur í Íslandssögunni, en síður hversu miklu máli hún hafi skipt. Magnlægar athuganir á þjóðhagfræðilegum áhrifum einokunarverslunarinnar eru litlar.
Í þessu erindi er gerð tilraun til að varpa einföldu máli á hvað einokunarverslunin kann að hafa kostað Íslendinga. Markmiðið er tvíþætt. Það er annars vegar að fá gleggri, magnlæga hugmynd um hvað einokunarverslunin gæti hafa þýtt efnahagslega fyrir Ísland, en slíkt mat myndi varpa skýrara ljósi á framvindu Íslandssögunnar á 17, 18 og fram eftir 19. öld. Hins vegar er markmiðið að sýna hvernig unnt einfaldar hagfræðilegar aðferðir geta aðstoðað við að skilja sögulega framvindu.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!