Hvenær
13. mars 2026 til 14 mars 2026
12:00 to 16:30
Hvar
Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Hugvísindaþing 2026 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 13. og 14. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum ætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Meðal þess sem fjallað verður um í ár er „dómstóll götunnar“, sakamál á tímabilinu 1600-1900, skáldkonan Nína Björk Árnadóttir, kvikmyndagerðarmaðurinn Ósvald Knudsen, kosningaréttur, kalda stríðið, vélrænn textalestur, orðatiltæki, hugsandi börn og bækur fyrir börn, seljabúskapur og rímur.

    Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, setur þingið í Hátíðasal í Aðalbyggingu föstudaginn 13. mars kl. 12:00 og í kjölfarið flytur Magnús Þorkell Bernharðsson, miðausturlandafræðingur við Williams College í Bandaríkjunum, hátíðarfyrirlestur. Málstofur hefjast kl. 13.15 og fara fram í Árnagarði, Lögbergi, Odda og Veröld. Laugardaginn 14. mars hefjast málstofur kl. 10 og verða allar í Árnagarði.

    Smellið hér til að skoða dagskrá þingsins.

    Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil