Edda
Fyrirlestrasal
- Aðgangur ókeypis
Jón Viðar Sigurðsson
Í fyrirlestrasal Eddu, miðvikudaginn 25. nóvember kl. 12:00.
Hávamál geymir lífsspeki sem hefur varðveist í meira en þúsund ár og á enn erindi til okkar. Í kvæðinu, sem er 162/4 erindi að lengd, og lagt í munn Óðins, veitir hann ráð um vináttu, völd, visku, gjafmildi, hófsemi, ást og þá list að lifa skynsamlega og vel, jafnframt sem hann hreykir sér af þekkingu sinni og greinir frá misvel heppnuðum ástarævintýrum sínum.
Í þessum fyrirlestri kynnir Jón Viðar Sigurðsson nýútkomna bók sína, Håvamål. En nøkkel til vikingtiden. Hávamál hefur komið út í fjölmörgum útgáfum og þýðingum, en bók Jóns Viðars er sú fyrsta sem leitast markvisst við að greina það samfélag, þau gildi og þá félagslegu heimsmynd sem kvæðið endurspeglar. Í stað þess að lesa Hávamál fyrst og fremst sem safn heilræða er kvæðið nýtt sem lykill að skilningi á samfélagi víkingaaldar, samskiptum fólks og þeim hugmyndum sem mótuðu daglegt líf, stjórnmál og menningu tímabilsins.
Í fyrirlestrinum mun Jón Viðar kynna meginniðurstöður bókarinnar og þá nálgun sem hún byggir á. Sérstök áhersla verður lögð á hlutverk gests og gestgjafa. Einnig verður fjallað um þá tvíeggjuðu mynd sem kvæðið dregur upp af konum og um mikilvægi þess að tala um tilfinningar sínar – hinn mjúka víking.
Jón Viðar Sigurðsson er prófessor í miðaldasagnfræði við Óslóarháskóla. Hann hefur ritað fjölda bóka og fræðigreina um sögu Norðurlanda á miðöldum. Rannsóknir hans beinast einkum að tímabilinu frá um 800 til 1400 og fjalla meðal annars um stjórnmála-, menningar-, kirkju- og trúarbragðasögu. Undanfarin ár hafa rannsóknir hans fyrst og fremst beinst að samfélagi víkingaaldar.
Fyrirlesturinn verður haldinn á íslensku og er öllum opinn. / The talk will be delivered in Icelandic and is open to all.
ENGLISH SPEAKERS PLEASE NOTE! Prof. Jón Viðar Sigurðsson will give his talk in English on Thursday, 26 November 2026, at 16:30 in Saga, Room S-075.
Miðaldastofa Háskóla Íslands — The University of Iceland Centre for Medieval Studies
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!