Harpa
- Aðgangur ókeypis
Stór hópur starfsfólks og stúdenta Háskóla Íslands tekur þátt í Hringborði norðurslóða (Arctic Circle) sem fram fer í Hörpu dagana 8.-10. október.
Arctic Circle er ein stærsta árlega ráðstefnan í heiminum á sviði norðurslóða en hún hefur verið haldin í Hörpu frá árinu 2013. Á Hringborðið mætir fólk alls staðar að úr heiminum, á þriðja þúsund manns, til þess að ræða framtíð norðurslóða og reyndar jarðarinnar allrar. Meðal þátttakenda eru fulltrúar frumbyggja á norðurslóðum, stjórnvalda, samtaka, atvinnulífs, háskóla, hugveita, umhverfissamtaka og almennings.
Hringborði norðurslóða er ekki síst ætlað að efla samtal og samstarf um framtíð og þróun norðurskautsins, en talið er að mikilvægi norðurslóða muni aukast á næstu áratugum, ekki síst vegna loftslagsbreytinga. Vísindafólk Háskóla Íslands af fjölbreyttum fræðasviðum hefur frá upphafi tekið virkan þátt í ráðstefnunni, bæði með því að skipuleggja eigin málstofur og taka þátt í málstofum annarra.
Undanfarin ár hefur Háskóli Íslands jafnframt staðið fyrir hliðarviðburði í aðdraganda ráðstefnunnar og engin breyting er á því í ár. Miðvikudaginn 7. október munu Háskóli norðurslóða (UArctic) og Háskóli Íslands bjóða til málþings í Hátíðasal HÍ um áskoranir norðurslóða með þátttöku fræðafólks, sérfræðinga og fagfólks víða að.
Á ráðstefnunni sjálfri í Hörpu stendur skólinn og stofnanir og svið innan hans, eins og Alþjóðamálastofnun, Norðurslóðasetur og Hugvísindasvið, fyrir fjölbreyttum málstofum í samtarfi við innlenda og erlenda háskóla og stofnanir með þátttöku fjölmargra sérfræðinga skólans.
Má þar nefna málstofur sem snerta
- stríðsleikjaógnir á norðurslóðum
- stefnu Bandaríkjanna á norðurslóðum og áhrif á samtarf innan NATO
- framtíð græns vetnis
- sjálfsmyndir, völd og stefnumörkun á svæðinu
- umhverfishugvísindi og sköpun á norðurslóðum
- norðurslóðastefnu ESB
- samstarf Íslands og Japans um norðurslóðamál
- jökla og ís á landi, samspil þeirra við breytt loftslag og áhrif á samfélög.
Fræðafólk tekur einnig þátt í málstofum á vegum annarra skóla og stofnana, m.a. um upplýsingastríð og blendingsógnir á norðurslóðum.
Háskóli Íslands verður einnig með bás á sýningarsvæði ráðstefnunnar þar sem gestir og gangandi geta m.a. kynnt sér ólíkar hliðar norðurslóðarannsókna í Háskóla Íslands, ýmist í spjalli við starfsfólk og nemendur eða á myndböndum.
Hægt er að kynna sér nám og rannsóknir í HÍ tengdar norðurslóðum á vef skólans.
Dagskrá Hringborðs norðurslóða í heild sinni má finna á vef ráðstefnunnar.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!