Heilabilun
Hvenær
6. október 2026
12:00 til 13:10
Hvar

Saga

Stofa 281

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Í málstofunni mun Jette Waagner, sjálfsætt starfandi ráðgjafi á sviði heilabilunar og Marte Meo þjálfari / handleiðari. Hún mun fjalla um hugmyndafræði og aðferðir Marte Meo, sem er myndbands-miðuð nálgun til að skoða samskipti og tengsl í umönnun og stuðningi við fólk með heilabilun.

Marte Meo byggir á því að greina og styrkja það sem virkar vel í daglegum samskiptum og opnar á hagnýtar lausnir til að skapa öryggi og jákvæð tengsl. Sérstök áhersla verður lögð á hvernig aðferðin er notuð í Danmörku í vinnu með fólki með heilabilun. Með myndbandsdæmum og greiningu verður kynnt hvernig smávægilegar breytingar í framkomu og nálgun geta haft djúpstæð áhrif á líðan og samvinnu einstaklinga með heilabilun. Málstofan hentar fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu, sem vill efla færni sína í samskiptum og stuðningi við einstaklinga í viðkvæmri stöðu.

Erindið fer fram á ensku og verður streymt.

Smellið hér til að komast inn á streymið

Hagnýt nálgun í umönnun fólks með heilabilun
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil