Hvenær
16. nóvember 2026
16:00 til 17:00
Hvar

VR-II

Stofa 157

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Mánudaginn 16. nóvember kl. 16:00 flytur dr. Jón Winkel opinn fyrirlestur á vegum IEEE á Íslandi og Rafmagns- og tölvuverkfræðideildar

Fyrirlesturinn hefst á GNSS yfirliti, hvaða kerfi eru til, hvernig kerfin eru uppbyggð, merkjaskilgreiningu, og meginþáttum staðsetningar.

Næst fer Jón yfir GNSS ,,jamming/spoofing", með megináherslu á ,,spoofing". Að lokum verður greint frá ,,Open Service Navigation Message Authentication" (OSNMA) og ,,Signal Authentication Service" (SAS), sem eru nýjar þjónustur sem verið er að koma á í Galileo.

Dr. Jón Winkel, lauk BS prófi í eðlisfræði frá HÍ, Diplómu í eðlisfræði frá háskólanum í Hamborg og Dr. Ing. frá háskólanum FAF í München. Eftir nám starfaði hann í Þýskalandi á sviði staðsetninga byggða á gervihnöttum (e. satellite navigation) og hefur verið viðriðinn uppbyggingu Galileo (evrópska GPS-ið) frá upphafi, meðal annars eru CDMA (Code Division Multiple Access) kóðarnir sem þar eru notaðir hans uppfinning (WO2006063613A1).

Fyrst starfaði Jón hjá þýska sprotafyrirtækinu IFEN þar sem aðallega voru unnin vísinda- og þróunarverkefni fyrir ESA (European Space Agency) á sviði Galileo. Síðan starfaði hann hjá þýska bílatæknifyrirtækinu Bosch sem sérfrog árið 2019 fór hann til Airbus og starfaði þar við þróun stafrænu merkjafræðinnar í næstu kynslóð Galileo gervihnatta.

Fyrir þremur árum flutti Jón heim til Íslands og starfar nú sjálfstætt sem ráðgjafi, meðal annars fyrir Evrópusambandið við að þróa og innleiða viðbætur til varnar gegn hinu hættulega GNSS spoofing, sem er orðið viðvarandi vandamál, sérstaklega í austurhluta Evrópu og miðausturlöndum.

Fyrirlesturinn er opinn öllum.

From GPS to Spoofing: How GNSS Work and the Quest for Trustworthy Navigation
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- viðburðir von

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil