Gróska
Fenjamýri og stofur í kring
- Aðgangur ókeypis
Markmið gagnaþonsins er að þróa virka frumgerð að gervigreindardrifinni leitarvél sem gerir notendum kleift að spyrja um gögn Hagstofu Íslands á venjulegu máli og fá skýr, gagnreynd svör.
Gagnaþonið stendur yfir í tvo sólarhringa og er ætlað háskólanemum, fagfólki og fyrirtækjum. Það hefst laugardaginn 31.október kl. 8:00 en setningin fer fram 30. október klukkan 15:00, þar sem gögn og annað tengt efni verður gert aðgengilegt þátttakendum.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!