Háskólatorg
Geðveikir dagar eru árlegur viðburður með kynningum, fyrirlestrum og öðrum viðburðum sem tengjast geðheilbrigði. Dagarnir eru samstarfsverkefni sálfræðinga Nemendaráðgjafar og Stúdentaráðs og standa yfir 2.-5.febrúar. Markmið þeirra er að efla umræðu um geðheilbrigðismál innan skólans og benda stúdentum á bjargir sem standa þeim til boða þegar kemur að geðheilsu.
Dagskrá
Mánudagur 2. febrúar
Kl. 11.30-13 á Háskólatorgi - Opnun Geiðveikra daga
Kynningar í hádeginu á Háskólatorgi. Þar geta nemendur spjallað við fulltrúa nemendaráðgjafar HÍ, Sálfræðiráðgjöf háskólanema, Einhuga – hópa fyrir háskólanemendur á einhverfurófi, Bergsins Headspace, Píeta og Geðhjálpar um hvaðeina sem viðkemur geðheilsu og stuðningi vegna andlegra áskorana.
Þriðjudagur 3. febrúar
Kl. 11.30-12.30 á Háskólatorgi - Pallborð um geðheilbrigðismál
Stúdentaráð stendur fyrir pallborði um geðheilbrigðismál á torginu með þátttöku Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, Péturs Maack, formanns Sálfræðingafélag Íslands, Grétars Björnssonar, stjórnarmanns í Hugarafli, og fulltrúa stúdenta. Þar verður rætt um ýmsa þætti geðheilbrigðiskerfisins, þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við sálfræðiþjónustu, greiningarferli, biðtíma og bráðaþjónustu.
Miðvikudagur 4. febrúar
Kl. 10-10.30 á Litla Torgi - Hugleiðsla
Hugleiðsla á Litla Torgi undir handleiðslu José M. Tirado, forsprakka Hugleiðsluhóps Háskóla Íslands.
Kl. 11.30 á Litla Torgi - Betri Svefn – betri líðan í skammdeginu
Erla Björnsdóttir, svefnsérfræðingur og stofnandi Betri svefns, fjallar um hvernig skammdegið og klukkan á Íslandi hafa áhrif á líkamsklukkuna, svefn og líðan og veitir hagnýt ráð til að bæta svefn og líða betur í myrkrinu.
Kl. 12 á Litla Torgi - Má bara ræða þetta? - Er umræða um sjálfsvíg skaðleg eða hættuleg?
Tómas Kristjánsson, lektor við Sálfræðideild, fjallar um hvernig við getum notað vísindi til þess að leiða umræðuna á þann stað að hún geti stutt og hjálpað þeim sem glíma við sjálfsvígshugsanir.
Kl. 12.30 á Litla Torgi - ADHD hjá stúlkum og konum: hormónasveiflur og ADHD einkenni
Unnur Jakobsdóttir Smári, sálfræðingur og doktorsnemi við HÍ, fjallar um hvernig hormónasveiflur sem tengjast tíðahring kvenna, meðgöngu og breytingaskeiðinu geta haft töluverð áhrif á ADHD einkenni og meðferð við ADHD. Farið verður yfir stöðu núverandi þekkingar í þessum efnum.
Fimmtudagur 5. febrúar
Kl. 11.30 á Litla Torgi - Nærumst og njótum
Hvernig nærum við okkur á heilbrigðan hátt? Í þessu erindi fer Ingunn Erla Invarsdóttir, klínískur næringarfræðingur, yfir hvernig hægt er að næra sig og efla heilsu á heilbrigðan hátt. Þá verður einnig farið yfir hvernig óheilbrigt samband við mat getur haft áhrif á ákvarðanatöku í kringum næringu og leiðir til að rjúfa það.
Kl. 12 á Litla Torgi - Hvernig hreyfi ég mig í takt við brenglaðar væntingar?
Einar Hansberg Árnason, íþróttafræðingur og þjálfari, og fjallar um mikilvægi hreyfingar í tengslum við geðheilbrigði.
Kl. 12.30 á Litla Torgi - Að byrja saman 101
Í þessu erindi fjallar Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur um leiðir til að hefja samband, „bleika skýið“, hvað gerist í líkamanum og tilfinningar og hugsanir sem takast á. Þá verður rætt um frammistöðukvíða, höfnun og hjálpleg ráð.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!