Saga
S-261
- Aðgangur ókeypis
Braut Menntunar, forystu og fræðslustarfs býður til hádegisfundar, miðvikudaginn 28. október, kl. 12:00 - 13:00 í stofu S-261, Sögu.
Fyrirlesarar verða Dr. Helgi Þorbjörn Svavarsson og Dr. María Jónasdóttir sem munu kynna doktorsverkefnin sín.
Forysta til félagslegs réttlætis til handa nemendum að erlendum uppruna og fjölskyldum þeirra í íslenskum skólum | Helgi Þ. Svavarsson
Í erindinu verða kynntar helstu niðurstöður doktorsrannsóknar sem skoðar hvernig skólastjórnendur á Íslandi nýta áhrifavald sitt til að efla félagslegt réttlæti fyrir nemendur af erlendum uppruna. Niðurstöður sýna að samfélagslegir þættir eins og lýðræðisleg gildi og samfélagslegt traust styðja við forystu í þágu félagslegs réttlætis, á meðan staðalímyndir um „venjulega“ nemandann, eintyngis stefna, skortur á fagþekkingu og óskýr stefnumótun geta hamlað slíkri þróun.
Þeir forystuhættir sem virtust vera líklegir til að efla félagslegt réttlæti, snerust að háum væntingum til allra nemenda og markvissri vinnu við að skapa sameiginlega framtíðarsýn, byggja upp traust og efla þekkingu starfsfólks á fjölmenningarlegum málefnum. Rannsóknin bendir þó til þess að möguleikar skólastjórnenda til að hafa áhrif séu verulega skilyrtir af kerfislægum þáttum og að þeir starfi oft í ákveðnu tómarúmi þegar kemur að því að skapa hagstæð skilyrði fyrir félagslegt réttlæti.
Erindið varpar ljósi á hvernig samspil forystu og samfélagslegra formgerða mótar möguleika skóla til að bæta námslega og félagslega stöðu nemenda af erlendu bergi.
Flæðandi áhrif stefnubreytinga: Námskrá, þekking og jöfn tækifæri til menntunar | María Jónasdóttir
Í erindinu verða kynntar helstu niðurstöður doktorsrannsóknar um hvernig stefnu-, stjórnsýslu- og námskrárbreytingar í íslenskum framhaldsskólum hafa mótað skipulag og innihald stúdentsprófsbrauta, og þar með tækifæri nemenda til að tileinka sér fræðilega þekkingu sem undirbýr þá fyrir háskólanám.
Um er að ræða breytingar á borð við dreifstýringu, aukna markaðsstýringu framhaldsskólastigsins, innleiðingu hæfnimiðaðrar námskrár og styttingu námsbrauta til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú.
Niðurstöðurnar sýna að eftir að ábyrgð á námskrárgerð færðist til skólanna ræðst námsframboð í auknum mæli af aðstæðum hvers skóla. Þar skipta nemendafjöldi, félagsleg samsetning nemendahópsins og aðgengi að sérmenntuðum kennurum miklu máli. Rekstrarlegar og fjárhagslegar forsendur vega oft þyngra en þekkingarfræðilegar kröfur námsgreina, einkum í stærðfræði, náttúruvísindum og erlendum tungumálum. Ójöfn tækifæri nemenda virðast því fremur stafa af ólíku aðgengi að þekkingu en af getu þeirra eða vali.
Í erindinu verður sérstaklega rætt hvað þetta þýðir fyrir stjórnendur framhaldsskóla og fyrir hlutverk ríkisins.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!