Hvenær
29. október 2026
13:00 til 14:00
Hvar

Gimli

G-301

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Ert þú með hugmynd að alþjóðlegri ráðstefnu eða fundi á Íslandi?

Meet in Reykjavík – Iceland Convention Bureau (MiR) býður starfsfólki Háskóla Íslands upp á óformlegan viðtalstíma þar sem hægt er að fá gjaldfrjálsa ráðgjöf um fyrstu skrefin við undirbúning alþjóðlegra ráðstefna.

Engin skráning er nauðsynleg, það er nóg að mæta í spjall. Við hjálpum þér að taka fyrstu skrefin.

Meet in Reykjavík og Háskóli Íslands hafa unnið saman frá árinu 2018 að því að fjölga alþjóðlegum akademískum fundum og ráðstefnum á Íslandi.

Meet in Reykjavík getur meðal annars:

  • Metið möguleika Íslands sem áfangastaðar fyrir ráðstefnuna
  • Leiðbeint um umsóknar- og tilboðsferlið
  • Aðstoðað við gerð kynningar- og umsóknargagna (bid)
  • Veitt upplýsingar um ráðstefnuaðstöðu og þjónustuaðila
  • Útvegað kynningarefni um Reykjavík og Ísland

Meet in Reykjavík er ekki ráðstefnuskipuleggjandi (PCO), heldur veitir faglega ráðgjöf og stuðning á fyrstu stigum verkefnisins.

Ertu með alþjóðlega ráðstefnu á döfinni?
Efnisorð
Ábyrgðaraðili

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil