Aðalbygging
A-220, 2. hæð til hægri
- Starfsfólk
Starfsfólk HÍ hefur möguleika á að sækja um ferða- og dvalarstyrki í Erasmus áætlunina. Farið verður yfir helstu möguleika sem í boði eru og hvernig umsókn er unnin, en næsti umsóknarfrestur um einstaklingasstyrki er 15. nóv 2026.
Erasmus+ er menntaáætlun Evrópusambandsins og er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu, styrkja Háskólann sem þekkingarsamfélag og styðja við mótun á samevrópsku, nútímavæddu háskólasamfélagi.
Erindið hentar öllu starfsfólki innan HÍ sem á rétt á styrk. Nánari upplýsingar um Erasmus+ má finna hér: https://hi.is/samstarf/althjodlegt-samstarf/erasmus/erasmus-styrkir-fyrir-starfsfolk
Birta B. Kjerúlf, verkefnisstjóri á Alþjóðasviði kynnir á ensku.
Kynningin er hluti af dagskrá Alþjóðadaga 4.-6. nóvember.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!