Skip to main content

Doktorsvörn í Menntavísindum: Ingimar Ólafsson Waage

Doktorsvörn í Menntavísindum: Ingimar Ólafsson Waage  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
4. nóvember 2025 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ingimar Ólafsson Waage ver doktorsritgerð sína í Deild faggreinakennslu við Háskóla Íslands. Vörnin fer fram þriðjudaginn 4. nóvember kl. 13:00 í Hátíðasal, aðalbyggingar Háskóla Íslands og verður einnig í streymi.

Hlekkur á streymi hér 

Heiti ritgerðar: Að kenna myndlist sem nálgun við siðferðislega menntun: Sjálfævisöguleg rýni á rannsóknaverkefni mitt

Andmælendur: dr David Hansen prófessor við Columbia University, BNA og Dr Laura D’Olimpio, dósent við University of Birmingham, England.

Aðalleiðbeinandi: Dr. Atli Vilhelm Harðarson, prófessor í deild fagreinakennslu, meðleiðbeinandi er dr. Ólafur Páll Jónsson deildarforseti deild menntunar og margbreytileika.

Auk þeirra sat í doktorsnefnd Dr. Anette Göthlund, prófessor við Konstfack háskóla í Svíþjóð.

Stjórnandi athafnar:  Dr. Elsa Eiríksdóttir forseti Deildar faggreinakennslu stjórnar athöfninni.

Verið öll velkomin!

Um doktorsefni:

Ingimar Ólafsson Waage (f. 1966) lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og sótti síðar framhaldsnám til École Nationale des Beaux Arts de Lyon í Frakklandi. Hann lauk kennsluréttindanámi frá Kennaraháskóla Íslands 1998 og meistaragráðu í heimspeki og félagsfræði menntunar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands 2012.

Hann starfaði við kennslu í Garðaskóla í Garðabæ 1995–2020 fyrst sem myndmenntakennari og síðar sem heimspekikennari meðfram myndmenntakennslunni. Hann hóf störf sem stundakennari við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands 2013, síðar sem aðjúnkt og lektor en gegnir í dag stöðu deildarforseta Listkennsludeildar Listaháskóla Íslands.

Hann er kvæntur Aðalheiði Matthíasdóttur fiðlukennara og eiga þau þrjár dætur og eitt barnabarn.

Um verkefnið:

Doktorsritgerðin hverfist um íhlutunarrannsókn sem var framkvæmd í samstarfi við þrjá myndmenntakennara þar sem markmiðið var að skoða hvernig efla mætti siðferðilega menntun í gegnum listsköpun út frá völdum dygðum og samræður um myndlist. Fræðilegar undirstöður voru m.a. sóttar til dygðasiðfræði Aristótelesar og samtímahugmynda reistar á henni, einkum ný-Aristótelisma og mannkostamenntunar. Ennfremur byggir höfundur á mennta- og listheimspeki John Dewey, kenningum Rudolf Arnheim um samspil skynjunar og hugsunar, skrifum Susanne Langer um tengsl lista við hið innra líf og tilfinningar ásamt hugmyndum Maxine Greene um möguleika lista og ímyndunarafls í menntun, einkum með hliðsjón af hlutverki kennara.

Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós mikilvægi þess að nemendum gefist tækifæri til að ígrunda listaverk og ræða hugmyndir sínar og tilfinningar í tengslum við þau og eigið líf. Niðurstöðurnar sýna ennfremur ríkulega hæfni nemenda á grunnskólaaldri til að glíma við flóknar siðferðilegar spurningar og tjá hugrenningar sínar um þær þrátt fyrir að hafa ekki þróað að fullu vald sitt á tungumálinu. Leiða má getum að því að ígrundun um listaverk og þátttaka í umræðum um þau geti verið mikilvæg viðbót við hefðbundið námsefni í grunnskólum.

Niðurstöðurnar leiða einnig í ljós mikilvægi kennarans sem er í lykilstöðu til þess að skapa aðstæður og traust í skólastofunni og þannig mótað farveg fyrir innihaldsríkt nám. Á hinn bóginn sýna niðurstöðurnar einnig að fyrir sakir rótgróinna hefða og væntinga um inntak og efnistök í myndmenntakennslu eru líkur á að kennarar þurfi að takast á við áskoranir sem þó er unnt að mæta með þolinmæði, ígrundun, umhyggju og virðingu.

Ennfremur varð höfundi ljóst hvernig hann sem listamaður, kennari og rannsakandi væri órjúfanlegur hluti rannsóknaferlisins, ekki væri hægt að aðgreina hina lífrænu heild mannlegra samskipta í skólastofunni frá tæknilegum hliðum skólastarfs sem felast í námsefni, kennsluaðferðum, íhlutunum og námsmati. 

Ingimar Ólafsson Waage (f. 1966) lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og sótti síðar framhaldsnám til École Nationale des Beaux Arts de Lyon í Frakklandi. Hann lauk kennsluréttindanámi frá Kennaraháskóla Íslands 1998 og meistaragráðu í heimspeki og félagsfræði menntunar frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands 2012.

Doktorsvörn í Menntavísindum: Ingimar Ólafsson Waage