Aðalbygging
Hátíðasal
- Aðgangur ókeypis
Sigurður Björnsson ver doktorsritgerð sína í hagfræði við Hagfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Optimal Utilization of High-Temperature Geothermal Resources - An Economic Approach (Besta nýting háhitaauðlinda - Hagræn nálgun).
Andmælendur eru dr. Whitney Trainor-Guitton, lektor við Colorado School of Mines og rannsakandi hjá National Laboratories of the Rockies í Bandaríkjunum, og dr. Reinhard Madlener, prófessor við RWTH Aachen University í Þýskalandi.
Leiðbeinendur eru dr. Marías Halldór Gestsson dósent við Háskóla Íslands og dr. Daði Már Kristófersson en auk þeirra sitja í doktorsnefnd dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, og dr. Egill Júlíusson, CTO hjá Arctic Green Energy.
Dr. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Hagfræðideild stýrir athöfninni. Vörnin fer fram á ensku og er öllum opin.
Ágrip:
Jarðvarmi er mikilvæg endurnýjanleg orkuauðlind en ákvarðanir um stærð virkjana og framleiðslu eru flóknar vegna óvissu um bæði jarðhitakerfið og framtíðarverð á raforku. Í rannsókninni er þróað hagrænt líkan sem styður slíkar ákvarðanir.
Aðferðafræðin er þróuð í þremur skrefum. Fyrst er grunnur líkansins styrktur og straumlínulagaður og sýnt er fram á að tiltekin gögn eru forsenda þess að líkanið gefi trúverðuga mynd af þróun jarðhitakerfisins. Næst er óvissa um stærð auðlindarinnar, afköst borhola og borkostnað tekin beint inn í ákvarðanatökuna. Niðurstöðurnar sýna að óvissa um stærð auðlindarinnar hefur sérstaklega mikil áhrif á hversu stóran fyrsta áfanga virkjunar er hagkvæmt að byggja. Í þriðja skrefinu er tekið tillit til óvissu um sveiflur í raforkuverði í raforkukerfi þar sem vatnsafl er ríkjandi.
Rannsóknin bendir til þess að hagkvæmt geti verið að byggja upp talsverða framleiðslu snemma en draga síðan úr henni þegar kostnaður við að halda fullum afköstum eykst. Sveigjanleiki til að lækka framleiðslu getur því aukið virði verkefna. Heildarniðurstaðan er að ákvarðanir um jarðvarmavirkjanir þurfi að taka samtímis mið af auðlindinni, óvissunni og markaðnum. Líkanið getur þannig nýst framkvæmdaaðilum og öðrum ákvörðunaraðilum við hagkvæma og ábyrga þróun jarðvarma.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!