Hvenær
28. október 2026
14:00 til 16:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Doktorsefni:
Mohiodin Nazemi

Heiti ritgerðar:
Þurrkun lífmassa með hléum: Kerfisbundið endurmat á orkunýtni

Andmælendur:
Dr. Shiplu Sarker, prófessor við norska vísinda- og tækniháskólann (NTNU) í Noregi
Dr. Anderson Assuah, dósent við University College of the North í Kanada

Leiðbeinandi:
Dr. Rúnar Unnþórsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Christiaan Petrus Richter, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Sigrún Nanna Karlsdóttir, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands

Ágrip:
Þurrkun er einn orkufrekasti þátturinn í vinnslu lífmassa með hátt rakainnihald, svo sem sjávarþörunga. Í rannsóknum hefur lotuþurrkun (e. intermittent drying) oft verið sögð orkunýtnari en samfelld þurrkun (e. continuous drying). Niðurstöður fyrri rannsókna hafa þó oft ekki verið bornar saman við jafngildar aðstæður og því hefur verið óljóst hvort orkusparnaður hafi stafað af raunverulegum kostum lotuþurrkunar eða aðferðafræðilegum skekkjum. Markmið rannsóknarinnar var að endurmeta orkunýtni lotuþurrkunar með kerfisbundnum hætti. Rannsóknin á rætur sínar að rekja til verkefna um kögglun sjávarþörunga, þar sem sýnt var fram á að meirihluti orkunnar í forvinnsluferlinu fór í þurrkun. Því var þróaður nýr samanburðarrammi sem gerir kleift að bera lotuþurrkun og samfellda þurrkun saman við jafngildar rekstraraðstæður. Framkvæmd var kerfisbundin heimildarýni og safngreining (e. meta-analysis) á birtum rannsóknum. Endurmat á niðurstöðunum sýndi að margir þeir kostir sem lotuþurrkun hefur verið eignuð minnka eða hverfa þegar samanburður er gerður á jafngildum forsendum. Jafnframt leiddu niðurstöður í ljós að þykkt efnis, upphaflegt rakainnihald og þurrkunarhitastig eru þeir meginþættir sem hafa áhrif á hlutfallslega frammistöðu þurrkunaraðferðanna. Þykkt efnis og upphaflegt rakainnihald voru síðan prófuð með stýrðum tilraunum á gljúpu svampefni og staðfest með tilraunum á bóluþangi, sem dæmigerðum lífmassa með hátt rakainnihald. Niðurstöðurnar sýna að lotuþurrkun er ekki í eðli sínu orkusparandi; árangur hennar ræðst fremur af eiginleikum efnisins og rekstrarskilyrðum. Kostir lotuþurrkunar raungerast helst þegar innri rakaflutningur takmarkar þurrkunarferlið. Ritgerðin setur fram samanburðarramma sem gerir kleift að bera lotuþurrkun og samfellda þurrkun saman við jafngildar forsendur og sýnir fram á að hagkvæmni nýtingar lífmassa með hátt rakainnihald ræðst að verulegu leyti af frammistöðu þurrkunarferlisins. Sú frammistaða mótast fyrst og fremst af eiginleikum efnisins og rekstrarskilyrðum fremur en af því hvort notuð er lotuþurrkun eða samfelld þurrkun.

Um doktorsefnið:
Mohiodin Nazemi fæddist og ólst upp í Íran. Hann lauk B.Sc.-gráðu í vélaverkfræði árið 2009 og M.Sc.-gráðu í hagnýtri hönnun árið 2015. Áður en hann flutti til Íslands starfaði hann í nokkur ár sem vélaverkfræðingur, aðallega við vélahönnun og iðnaðarframleiðslu. Hann flutti til Íslands árið 2019 og lauk M.Sc.-gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 2021. Síðar sama ár hóf hann doktorsnám í vélaverkfræði við Háskóla Íslands. Hann býr í Reykjavík ásamt eiginkonu sinni.

Doktorsvörn í vélaverkfræði - Mohiodin Nazemi
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- von

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil