Hvenær
20. nóvember 2026
09:00 til 11:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Doktorsefni:
Stefanía Andersen Aradóttir

Heiti ritgerðar:
Stöðuleikagreiningar á línulegum skiptikerfum með tölulegum útreikningum Lyapunov falla sem eru samfelld og línuleg- eða ferningsmargliður á köflum

Andmælendur:
Dr. Shenyu Liu, lektor við School of Automation, Beijing Institute of Technology, Kína
Dr. Florian Rupp, prófessor við Stærðfræði og Tölvunarfræðisvið, Kutaisi International University, Georgíu

Leiðbeinandi:
Dr. Sigurður Hafstein, prófessor við Raunvísindardeild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Elias August, dósent við Verkfræðideild Háskólans í Reykjavík
Dr. Anna Soffía Hauksdóttir, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands
Dr. Peter Giesl, prófessor við Stærðfræðideild University of Sussex, Bretland

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Birgir Hrafnkelsson, prófessor og deildarforseti Raunvísindadeildar HÍ

Ágrip:
Farið er yfir tölulegar aðferðir fyrir útreikninga Lyapunov falla, sem eru samfelld og línuleg- eða ferningsmargliður á köflum, með línulegri bestun fyrir línuleg skiptikerfi. Fjallað verður um notkun þessara aðferða við stöðugleikagreiningar þegar stýrimerkið er annarsvegar ótiltekið og þegar settar eru meðaldvalartímaskorður hinsvegar. Einnig verður fjallað um þær áskoranir sem eru fólgnar í útreikningum lámarksmeðaldvalartíma fyrir stöðugleika og kynnt leitarreiknirit til að reikna lámarksmeðaldvalartíma. Loks verður fjallað um hvernig við nálgumst tölulega útreikninga á Lyapunov föllum sem eru samfelld og ferningsmargliður á köflum með línulegri bestun í stað hálfákvarðari bestun.

Um doktorsefnið:
Stefanía hefur stundað allt sitt háskólanám við Háskóla Íslands. Hún útskrifaðist með BS gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði árið 2017, hagnýtri stærðfræði árið 2022 og hlaut meistarapróf í rafmagns- og tölvuverkfræði árið 2023.

Doktorsvörn í stærðfræði - Stefanía Andersen Aradóttir
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- von

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil