Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Þriðjudaginn 27. október fer fram doktorsvörn við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði við Háskóla Íslands. Þá ver Lea Debora Pokorny doktorsritgerð sína í sagnfræði, Book Production in Late-Fourteenth-Century Iceland. A Codicological Study in the European Context. Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Andmælendur við vörnina verða Nicole Volmering, rannsóknarlektor við Trinity College Dublin, og Kathryn Lowe, dósent við University of Glasgow. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Beeke Stegmann, rannsóknardósents við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Erik Kwakkel, prófessors við University of British Columbia. Einnig voru í doktornefnd Haraldur Bernharðsson, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, og Viðar Pálsson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.
Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir, deildarforseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Þessi rannsókn miðar að því að auka þekkingu á framleiðsluháttum á íslenskum handritum og skipulagi þeirra. Samantekið benda niðurstöðurnar til þess að framleiðsla íslenskra handrita á seinni hluta fjórtándu aldar hafi einkennst af fjölbreyttum aðferðum. Ósamræmið sem sífellt sést gefur til kynna að þessir handverksmenn hafi nýtt til fulls þau efni og úrræði sem þeim stóðu til boða og að menntun þeirra hafi ekki verið stöðluð. Í heild tala niðurstöðurnar fyrir dreifðri skipulagningu á framleiðslu bóka sem ég túlka sem „lóðrétt lög“, þar sem ósamræmi var viðtekið. Þetta ósamræmi hindrar að vissu marki greiningu á mögulegum áhrifum frá og hliðstæðum við aðrar evrópskar bókagerðarhefðir, en bendir jafnframt til þess að áhrifa og hliðstæða sé að leita bæði í eyjahefðum og meginlandshefðum Evrópu sem gerði Ísland að eins konar deiglu framleiðsluaðferða.
Um doktorsefnið
Lea Debora Pokorny lauk BA-prófi í skandinavískum fræðum við Háskólann í Vín, sem og BA prófi í íslensku sem öðru máli og MA prófi í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!