Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Mánudaginn 16. nóvember ver Ragnhildur Guðmannsdóttir doktorsritgerð sína í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Mataræði á Íslandi með áherslu á heilnæmi og umhverfisáhrif. Evaluating diets in Iceland. Diet quality and environmental impacts in population surveys.
Andmælendur eru Anna-Karin Lindroos, prófessor við Uppsala Universitet í Svíþjóð, og Donald Rose, prófessor við Tulane University í Bandaríkjunum.
Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Þórhallur Ingi Halldórsson prófessor. Auk hans sátu í doktorsnefnd Bryndís Eva Birgisdóttir prófessor og Ólöf Guðný Geirsdóttir prófessor, og Ólafur Ögmundarson prófessor fyrri hluta doktorsnámsins og Birna Þórisdóttir dósent seinni hluta námsins.
Hildur Inga Sveinsdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 9.00.
Ágrip
Mataræði og umhverfi á Íslandi var rannsakað, annars vegar kolefnisspor og hollusta mataræðis fullorðinna og barna og hins vegar möguleg tengsl næringar ungbarna við áhrif loftmengunar á börn.
Notuð voru gögn um mataræði og næringu úr Landskönnun fullorðinna, sambærilegri könnun meðal grænkera, þremur landskönnunum meðal barna, og íslensku mæðra- og barnaheilsurannsókninni (Icelandic Maternal- and Child Health Study, ICE-MCH). Kolefnisspor mataræðis var metið með notkun þriggja gagnagrunna sem innihalda lífsferilsgreiningar, frá Danmörku, Bandaríkjunum og Frakklandi. Fylgni við ráðleggingar um mataræði var metin út frá neyslu fæðuflokka, næringarefnum og gjörunnum matvælum.
Kolefnisspor mataræðis fullorðinna gaf sambærilegar niðurstöður þvert á gagnagrunna. Rautt kjöt og mjólkurvörur ullu mestri losun kolefnis meðal bæði fullorðinna og barna. Breyting mataræðis í átt að opinberum ráðleggingum um mataræði minnkar verulega kolefnissporið. Mataræði grænkera sýndi minna kolefnisspor og var meira í samræmi við ráðleggingar um orkugefandi næringarefni en mataræði alkera, þó fengu báðir hópar tæplega helming orkuinntökunnar frá gjörunnum matvælum og höfðu ófullnægjandi næringarefnainntöku D vítamíns, kalks og joðs. Í mataræði barna 6 ára og eldri var sælgæti, kökur, kex og snakk þriðji stærsti fæðuflokkur kolefnissporsins. Greining upplýsinga um brjóstagjöf og D-vítamíninntöku, loftmengun og úttektir astmalyfja sýndi hugsanleg tengsl næringar ungbarna við vernd gegn loftmengun. Niðurstöðurnar styðja að næring er mikilvæg fyrir heilsu og til að draga úr umhverfisáhrifum.
Abstract
The intersection of diets and environmental sustainability, carbon footprint, was studied, as well as infant nutrition and early-life air pollution exposure in Iceland.
This thesis utilized dietary data from the Icelandic National Dietary Survey, a comparable vegan survey, three children’s national surveys, and the Icelandic Maternal and Child Health Study (ICE-MCH). Dietary carbon footprint was estimated using LCA databases from Denmark, the United States, and France. Dietary recommendations adherence was assessed for food groups, nutrient -intake and ultra-processed food.
Adult carbon footprint remained consistent across databases. Red meat and dairy showed the highest impact among adults and children. Shifting toward official dietary recommendations significantly lowers the emissions. Vegans showed substantially lower carbon footprint and better macronutrient compliance than omnivores, though both derived nearly half their energy intake from ultra-processed food, with suboptimal intakes of vitamin D, calcium and iodine. Among children 6 years and older, discretionary foods ranked third in overall dietary carbon footprint. A case-crossover design investigated infant nutrition association with air pollution-induced asthma medication dispensing and showed odds of the medication to be influenced by breastfeeding and vitamin D. The results support the importance of nutrition for health and for reducing environmental influences.
Um doktorsefnið
Ragnhildur Guðmannsdóttir er fædd árið 1988 í Reykjavík. Hún lauk B.Sc. gráðu í næringarfræði frá Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands árið 2017 og M.Sc. gráðu í næringarfræði frá sama skóla árið 2020. Ragnhildur hóf doktorsnám við Háskóla Íslands árið 2021.
Foreldrar Ragnhildar eru Þórhildur Svavarsdóttir, leikskólaliði, og Guðmann Hauksson, húsasmiður. Ragnhildur er búsett í Kaupmannahöfn ásamt eiginmanni sínum Mathiasi S. Halfdaner, forstöðumanni og tæknistjóra, synir þeirra eru Viktor Alexander Halfdaner og Markus Ari Halfdaner.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!