Hvenær
11. desember 2026
09:00 til 12:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Föstudaginn 11. desember 2026 ver Edythe Laquindanum Mangindin doktorsritgerð sína í ljósmóðurfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Menningarhæf ljósmæðraþjónusta: Upplifun erlendra kvenna af barneignarþjónustu og þjálfun í menningarhæfni fyrir ljósmæður á Íslandi. Á ensku: Culturally competent midwifery care: Migrant women’s experiences of maternity services and adaptation of a training program for midwives in Iceland.

Andmælendur eru dr. Eline Skírnisdóttir Vik, prófessor í ljósmóðurfræði við Högskulen på Vestlandet í Noregi, og dr. Erica Schytt, prófessor í ljósmóðurfræði við Högskulen på Vestlandet og rannsakandi við Uppsalaháskóla og Karolinska Institute í Svíþjóð.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var Emma Marie Swift, prófessor og ljósmóðir við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild, og meðleiðbeinandi Helga Gottfreðsdóttir ljósmóðir og prófessor við sömu deild. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Franka Cadée, PhD, stjórnandi við Maternity Foundation í Kaupmannahöfn, Helga Zoega, prófessor við Háskóla Íslands, og Kathrin Stoll, ráðgjafi við University of British Columbia.

Valgerður Lísa Sigurðardóttir, dósent, námsbrautarstjóri í ljósmóðurfræði, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 9.00.

Ágrip

Menningarhæf og einstaklingsmiðuð umönnun er grundvallarforsenda öruggrar og vandaðrar barneignarþjónustu. Meginmarkmið doktorsritgerðarinnar var að kanna reynslu erlendra kvenna af barneignarþjónustu á Íslandi og aðlaga námskeið í menningarhæfni að íslenskum aðstæðum fyrir ljósmæður og meta árangur þess.

Framkvæmdar voru fjórar rannsóknir þar sem sjónum var beint að reynslu kvenna af erlendum uppruna af barneignarþjónustu á Íslandi og menningarhæfni ljósmæðra. Í tveimur þversniðsrannsóknum var reynsla kvenna af virðingu, sjálfræði, fæðingarupplifun og óviðeigandi meðferð könnuð með spurningalistum. Í hinum tveimur rannsóknunum var árangur námskeiðs í menningarhæfni fyrir ljósmæður og ljósmæðranema metinn með spurningalistum og eigindlegum viðtölum.

Niðurstöðurnar sýndu að konur af erlendum uppruna upplifðu minni virðingu, minna sjálfræði og neikvæðari fæðingarupplifun en konur fæddar á Íslandi. Fjórðungur þátttakenda greindi frá vanvirðandi eða óviðeigandi meðferð í fæðingu, án þess að marktækur munar væri milli hópanna. Þjálfun í menningarhæfni jók þekkingu, færni og öryggi ljósmæðra og ljósmæðranema og stuðlaði að auknum skilningi og samkennd. Viðtöl við ljósmæður leiddu jafnframt í ljós að þrátt fyrir aukna menningarhæfni geta kerfislægar hindranir torveldað einstaklingsmiðaða og menningarnæma þjónustu.

Abstract

Culturally competent and individualized care is fundamental for safe and high-quality maternity services. The aim of this doctoral thesis was to examine the experiences of migrant women regarding maternity services in Iceland and to evaluate the outcomes of a culturally competent care training course for midwives, adapted to the Icelandic context.

Four studies were conducted, focusing on migrant women’s experiences of maternity services in Iceland and the cultural competency of midwives. Two cross-sectional studies used questionnaires to assess women’s experiences regarding respect, autonomy, their birth experiences and instances of mistreatment. The other two studies evaluated the effectiveness of a cultural competence training course for midwives and midwifery students, utilizing both questionnaires and qualitative interviews.

The findings indicated that migrant women experienced less respect, less autonomy and a more negative birth experience compared to native-born Icelandic women. A quarter of the participants reported experiencing disrespectful or inappropriate treatment during childbirth, with no statistically significant difference observed between the two groups. Training in cultural competence increased the knowledge, skills and confidence of midwives and midwifery students and fostered greater understanding and empathy. Furthermore, interviews with midwives revealed that, despite increased cultural competency, systemic barriers hindered the provision of individualized and culturally sensitive care.

Um doktorsefnið

Edythe Laquindanum Mangindin er fædd árið 1982 í San Francisco í Bandaríkjunum. Hún flutti til Íslands árið 2009 og lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands árið 2015, kandídatsprófi í ljósmóðurfræði árið 2018 og meistaraprófi í ljósmóðurfræði árið 2020. Hún hóf doktorsnám við Háskóla Íslands á haustmisseri 2020. Samhliða námi hefur Edythe verið í starfi á Fæðingarheimili Reykjavíkur, tekið þátt í kennslu í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands og setið í ritstjórn Ljósmæðrablaðsins. Auk þess er hún virkur meðlimur í Samtökum kvenna af erlendum uppruna þar sem hún er jafningjaráðgjafi og fyrrverandi stjórnarkona.

Edythe er dóttir Benwrights E. Mangindin og Lisu L. Mangindin. Eiginmaður hennar er Valur Arnarson og synir þeirra eru Ari Pablo Valsson og Haukur Ben Valsson.

Doktorsvörn í ljósmóðurfræði - Edythe Laquindanum Mangindin
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Heilbrigðisvísindasvið

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil