Hvenær
11. nóvember 2026
13:00 til 16:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Miðvikudaginn 11. nóvember 2026 ver Snædís Ragnarsdóttir doktorsritgerð sína í líf- og læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Ágengt ER-jákvætt brjóstakrabbamein: Klínísk og líffræðileg innsýn í áhrif TP53 stökkbreytinga, BRCA2 skorts og ungs aldurs við greiningu. Aggressive ER-positive breast cancer: Clinical and biological insights from TP53 mutations, BRCA2 deficiency and early-onset disease.

Andmælendur eru dr. Therese Sørlie, prófessor við Háskólann í Ósló, og dr. Sævar Ingþórsson, dósent við Háskóla Íslands.

Umsjónarkennari var Stefán Þ. Sigurðsson, prófessor, leiðbeinandi var Þorkell Guðjónsson, lektor, og meðleiðbeinandi var Linda Viðarsdóttir, lektor. Auk þeirra sat Bylgja Hilmarsdóttir, lektor, í doktorsnefnd.

Þórarinn Guðjónsson, prófessor, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.

Ágrip

Estrógenviðtaka-jákvætt (ER-jákvætt) brjóstakrabbamein tengist almennt góðum horfum og svörun við hormónameðferð. Horfur sjúklinga eru þó breytilegar og innan ER-jákvæðs brjóstakrabbameins eru undirhópar með verri horfur og ágengari líffræðilega eiginleika.

Í þessari ritgerð voru klínískar greiningar, frumutilraunir og umritunargreiningar notaðar til að rannsaka klíníska og líffræðilega þætti sem tengjast verri horfum og ágengari eiginleikum brjóstakrabbameins, með sérstakri áherslu á ER-jákvæðan sjúkdóm. Í klíníska rannsóknarhlutanum voru tengsl TP53-stökkbreytinga við lifun metin í íslensku þýði brjóstakrabbameinssjúklinga, meðal annars með greiningum eftir ER-stöðu. Frumutilraunirnar beindust hins vegar að áhrifum BRCA2-skorts. Umritunargreiningarnar beindust að líffræðilegum eiginleikum ER-jákvæðra æxla hjá BRCA2-arfberum og ungum konum.

Í klíníska rannsóknarhlutanum tengdust TP53-stökkbreytingar marktækt verri lifun í ER-jákvæðu brjóstakrabbameini. Leitandi greiningar (e. exploratory analysis) bentu til þess að þessi tengsl væru sérstaklega áberandi í Luminal A-æxlum.

Frumutilraunirnar sýndu að estradíól jók DNA-skemmdir og litningaóstöðugleika í BRCA2-skertum ER-jákvæðum brjóstakrabbameinsfrumum. Niðurstöðurnar benda til þess að skortur á BRCA2 geti gert þessar frumur viðkvæmari fyrir álagi á erfðaefnið sem tengist estrógeni.

Umritunargreiningarnar sýndu að BRCA2-stökkbreytt æxli og ER-jákvæð BRCA2-villigerðaræxli hjá ungum sjúklingum höfðu að hluta til svipaða virkni ferla sem tengjast frumufjölgun, framvindu frumuhrings og vaxtarboðleiðum. Þrátt fyrir þessi líkindi sáust hærri HRD-skor, sem endurspegla galla í samstæðri endurröðunarviðgerð DNA, aðeins í BRCA2-stökkbreyttu æxlunum.

Niðurstöðurnar veita nýja innsýn í líffræðilega ágenga undirhópa ER-jákvæðs brjóstakrabbameins og auka skilning á þeim klínísku og sameindafræðilegu þáttum sem tengjast verri horfum.

Abstract

Estrogen receptor-positive (ER-positive) breast cancer generally has a favorable prognosis and responds to endocrine therapy. However, outcomes vary, and some subgroups display aggressive features.

This thesis used clinical, experimental and transcriptomic approaches to examine factors associated with adverse outcomes in breast cancer, with emphasis on ER-positive disease.

In an Icelandic cohort, the association between TP53 mutations and survival was evaluated, including analyses stratified by ER status. TP53 mutations were associated with poorer survival in ER-positive disease; exploratory analyses suggested that this association was particularly pronounced in Luminal A tumors.

Experimental studies showed that estradiol increased DNA damage and chromosomal instability in BRCA2-deficient ER-positive breast cancer cells, suggesting that BRCA2 deficiency may make these cells more susceptible to genomic stress associated with estrogen exposure.

Transcriptomic analyses showed that BRCA2-mutated tumors and ER-positive BRCA2 wild-type tumors from younger patients had partially overlapping activity patterns in pathways related to proliferation, cell-cycle progression and growth-factor signaling. Despite these similarities, higher homologous recombination deficiency (HRD) scores were observed only in BRCA2-mutated tumors. The results provide insight into biologically aggressive subgroups of ER-positive breast cancer and improve our understanding of the clinical and molecular factors associated with adverse outcomes.

Um doktorsefnið

Snædís Ragnarsdóttir fæddist í Reykjavík árið 1989. Hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut við Kvennaskólann í Reykjavík árið 2009, bakkalárgráðu í lífeindafræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og meistaragráðu í lífeindafræði frá sama háskóla árið 2019. Hún hóf doktorsnám við Háskóla Íslands haustið 2019. Samhliða doktorsnáminu hefur Snædís komið að kennslu í verklegum tímum í lífefnafræði, sameindalífvísindum og erfðafræði ásamt þjálfun bakkalárs- og meistaranema við Háskóla Íslands.

Foreldrar Snædísar eru Ragnar Karlsson og Karen Rögnvaldsdóttir. Unnusti hennar er Viktor Kristmannsson og saman eiga þau börnin Viktoríu Stellu Viktorsdóttur og Andra Hrafn Viktorsson.

Doktorsvörn í líf- og læknavísindum - Snædís Ragnarsdóttir
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Heilbrigðisvísindasvið

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil