Hvenær
13. nóvember 2026
13:00 til 15:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Doktorsefni:
Byron Fabian Pilicita Masabanda

Heiti ritgerðar:
Samverkun vökva og bergs í grennd við súr og basísk innskot

Andmælendur:
Dr. Agnes G. Reyes, forstjóri og aðaljarðfræðingur Reyes Geosciences Ltd, Nýja Sjálandi
Dr. Peter Kodera, prófessor við náttúruvísindadeild Comenius-háskóla, Bratislava, Slóvakíu

Leiðbeinandi:
Dr. Enikő Bali, prófessor við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands

Einnig í doktorsnefnd:
Dr. Guðmundur Heiðar Guðfinnsson, rannsóknadósent við Jarðvísindastofnun Háskólans
Dr. Guðmundur Ómar Friðleifsson, látinn af störfum sem jarðfræðingur, upphafsmaður og stjórnandi við íslenska djúpborunarverkefnið (IDDP)
Sigurður Garðar Kristinsson (M.Sc), jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum

Doktorsvörn stýrir:
Dr. Andri Stefánsson, prófessor og deildarforseti Jarðvísindadeildar HÍ

Ágrip:
Verkefnið felur í sér rannsóknir á breytingum í hita og jarðefnafræði á mörkum kviku og jarðhitakerfis innan Geitafellseldstöðvarinnar á Suðausturlandi. Með því fást mikilvægar upplýsingar fyrir jarðhitaleit í háhitakerfum. Með samþættingu bergfræði, jarðefnafræði bergs, mismunandi örgreiningaraðferða og varmalíkana leggur þessi rannsókn grunn að aðferðum til skilnings á því hvernig innskot af mismunandi stærð knýja jarðhitakerfi með hátt vermi. Rannsóknin leiðir í ljós að þroskasaga jarðhitakerfa ræðst af mismunandi hitagjöfum. Smáir basaltgangar (0,5 m þykkir) gefa frá sér háhitapúlsa sem valda staðbundið torséðri hlutbráðnun (3–10%) og hárri myndbreytingu (>800 °C). Þótt slíkir gangar storkni innan sólarhrings valda þeir hærri hita í grannberginu í allt að þrjú ár. Þar af leiðir að tíð kvikuinnskot viðhalda háu hitastigi áratugum saman. Á hinn bóginn virkaði hið meðalstóra (≈782 m þykkt) Hoffellsgranítinnskot sem langtíma varmagjafi. Hoffellsinnskotið myndaðist við mikla hlutkristöllun (>95%) þar sem hár styrkur halógena (F, Cl) í kvikunni lækkaði bræðslumark hennar. Þetta lengdi kælingarferlið og gerði það að verkum að Hoffellsinnskotið entist sem hitagjafi í yfir 7000 ár. Greining á vökvainnlyksum í kvarsi frá Hoffellsinnskotinu leiðir í ljós breytingar í efnasamsetningu frá málmríkum, saltmettuðum kvikupæklum yfir í vökva sem var að uppruna grunnvatn í hringrásarkerfi. Í heildina gefa þessar niðurstöður vísbendingar um jarðfræðilega þróun Geitafells og sýna fram á hvernig það fór frá því að vera staðsett nærri rekás yfir í að vera innan hliðargosbeltis. Þetta samþætta líkan leggur grunn að aðferðafræði til að bera kennsl á djúpa hitagjafa og draga úr tæknilegri áhættu, svo sem saltútfellingum og klórtæringu, þegar borað er í rætur háhitakerfa í virkum eldfjöllum.

Um doktorsefnið:
Byron Pilicita M. hlaut B.Sc.-gráðu í jarðverkfræði frá Tækniháskóla Ekvadors (EPN) árið 2012. Eftir að hann lauk B.Sc.-náminu vann hann eitt ár í námuiðnaðinum (2013-2014) og fjögur ár í jarðhitaiðnaðinum (2014-2018) hjá ríkisfyrirtækjum í Ekvador. Á þeim tíma hlaut hann sex mánaða þjálfun hjá Jarðhitaskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (GRÓ GTP / UNU-GTP) á Íslandi árið 2016. Árið 2021 lauk hann M.Sc.-námi í jarðfræði frá Háskóla Íslands og hóf sama ár doktorsnám sitt við Háskólann. Aðal metnaður Byrons er að leggja sitt af mörkum til að leysa loftslagsvána með því vera virkur þátttakandi í þróun jarðhitaiðnaðarins. Foreldrar Byrons eru þau Héctor Pilicita og Eva Masabanda. Hann er elstur þriggja systkina en systir hans er Michelle and bróðir hans er Richard. Byron á rætur sínar að rekja til Ekvador en býr nú á Íslandi með konu sinni, Sigrúnu Jónsdóttur, og syni þeirra, Emil Jörundi. Hann hefur líka með stolti gengið systursyni sínum, Jared Pilicita, í föðurstað.

Doktorsvörn í jarðfræði - Byron Fabian Pilicita Masabanda
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- von

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil