Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Fimmtudaginn 19. nóvember 2026 fer fram doktorsvörn við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Þá ver Bjarni M. Bjarnason doktorsritgerð sína í almennri bókmenntafræði, Sjóvota draumskáldið og bókmenntaarfleifð draumsins. Viðburðurinn fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 13:00.
Andmælendur við vörnina verða Haraldur Hreinsson, dósent í sögu kristni og trúarbragðafræði við Háskóla Íslands, og Jürg Glauser, prófessor emeritus í norrænni textafræði við Háskólann í Zürich.
Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Ástráðs Eysteinssonar, prófessors í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Benedikt Hjartarson, prófessor í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnúsonar í íslenskum fræðum og Rósa Þorsteinsdóttir, rannsóknardósent við sömu stofnun.
Ásgrímur Angantýsson, forseti Íslensku og menningardeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina
Í ritgerðinni er rannsakað hvaða frásagnarfræðilega hlutverki draumar og draumljóð gegna í bókmenntum, og er sett fram tilgáta um það í fimm liðum. Fyrst er tilgátan borin upp að völdum heimsbókmenntum, svo sem Gilgameskviðu, Biblíunni, og nokkrum Íslendingasögum, en mest áhersla er á draumvísur í íslenskum þjóðsögum og sögnum. Tæplega 300 draumvísum sem fundust við rannsóknina er skipt upp í 11 draumvísuflokka, og mest fengist við stærsta flokkinn; draumvísur sjóvota draumskáldsins. Rannsakað er hvað einkennir þennan flokk draumvísna sérstaklega, hvaða félagslegi veruleiki kallaði þær fram, og greint hvaða félagslega hlutverki þær gegndu. Saga örbókmenntagreinarinnar draumvísur í þjóðsögum og sögnum er rakin og fjallað um hana frá mörgum sjónarhornum.
Um doktorsefnið
Bjarni M. Bjarnason hefur stundað nám við Háskóla Íslands undanfarin ár og lokið þaðan BA-prófi í bókmenntafræði, BA-prófi í guðfræði, og MA-prófi í menningarfræði. Hann býr í Garðabæ og starfar sem rithöfundur og fræðimaður.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!