Hvenær
9. nóvember 2026
13:00 til 15:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Doktorsvörn í Umhverfis- og auðlindafræði – Guðmundur Kristján Óskarsson

Mánudaginn 9. nóvember ver Guðmundur Kristján Óskarsson doktorsritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Waste Management under Structural Constraints: Efficiency, Policy Reform, and Recycling Performance in Iceland(Úrgangsstjórnun í fjötrum kerfis: Umbætur, árangur og skilvirkni í endurvinnslu á Íslandi).

Andmælendur eru dr. Catherine Keske, prófessor við Department of Chemical and Materials Engineering, University of California, Merced, og dr. Giacomo Di Foggia, prófessor við Department of Economics, Management and Law, University of Milano-Bicocca.

Umsjónarkennari og leiðbeinandi var dr. Sveinn Agnarsson, prófessor við Háskóla Íslands. Auk hans sátu í doktorsnefnd dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands og dr. Helgi Þór Ingason, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

Ásta Dís Óladóttir prófessor og deildarforseti Viðskiptadeildar stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.

> Streymi á Zoom:

Ágrip

Ísland er fámennt og strjálbýlt land á norðurslóðum, sem gerir úrgangsstjórnun krefjandi. Í ritgerðinni er metið hvernig stefnumótun í úrgangsmálum skilar sér í framkvæmd hjá íslenskum sveitarfélögum. Sérstök áhersla er lögð á árangur endurvinnslu og á breytingarnar árið 2023, þegar lög um hringrásarhagkerfi, aukna framleiðendaábyrgð og samræmt flokkunarkerfi við heimili tóku gildi.

Niðurstöðurnar sýna að fjarlægðir, dreifð byggð og árstíðabundin ferðaþjónusta setja úrgangskerfum sveitarfélaga verulegar skorður. Hluti þess sem hefðbundnir mælikvarðar geta túlkað sem óskilvirkni endurspeglar í raun kostnað vegna flutninga, smæðar og þjónustuþarfar umfram skráðan íbúafjölda. Innleiðing fjögurra flokka kerfis við heimili tengdist jafnframt skýrri minnkun á lífbrjótanlegum eldhúsúrgangi sem eftir var í almenna sorpílátinu. Árangurinn var þó mismunandi eftir innviðum í hverju sveitarfélagi og landfræðilegum aðstæðum.

Meginniðurstaðan er sú að samræmt regluverk sé nauðsynlegt en dugi ekki eitt og sér. Til að hringrásarhagkerfi nái árangri þarf einnig að laga söfnunarkerfi, fjármögnun og þjónustu að staðbundnum aðstæðum. Niðurstöðurnar geta nýst við mótun árangursmælikvarða, fjármögnunarfyrirkomulags og söfnunarkerfa, bæði á Íslandi og á öðrum smáum, afskekktum og norðlægum svæðum.

Abstract

Iceland is a small and sparsely populated northern country where waste management is shaped by long distances, dispersed settlement and seasonal population changes. This thesis examines how national waste policy is translated into municipal practice, with particular emphasis on recycling performance and the 2023 reform that introduced expanded Extended Producer Responsibility and harmonised household source separation.

Using efficiency analysis and statistical methods, the thesis shows that geography, settlement patterns and seasonal tourism impose significant structural constraints on municipal waste-management performance. Some of what standard indicators may interpret as managerial inefficiency instead reflects the costs of spatial dispersion, transport and service demand beyond the registered resident population. The mandatory four-bin household source-separation system was also associated with a clear reduction in biodegradable kitchen waste remaining in the general bin. However, outcomes continued to vary with local infrastructure and geographic conditions.

The thesis concludes that harmonised regulation is necessary but not sufficient. Effective circular-economy policy also requires collection systems, financing arrangements and services that are adapted to local conditions. The findings have relevance for performance measurement, financing and collection-system design in Iceland and in other small, island, Arctic and remote regions.

Doktorsvörn: Guðmundur Kristján Óskarsson
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Viðskiptafræðideild

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil