Hvenær
25. nóvember 2026
14:00 til 16:00
Hvar

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Ágústa Þóra Jónsdóttir ver doktorsritgerð sína í umhverfis- og auðlindafræði við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Umbreyting í hringrásarhagkerfi. Aðgerðir og stefnumótun fyrir sjálfbærni í íslenskum byggingariðnaði og hjá Íslenska sjávarklasanum.

Leiðbeinendur voru dr. Lára Jóhannsdóttir og dr. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessorar við Háskóla Íslands. Ásta Dís Óladóttir, deildarforseti Viðskiptafræðideildar, stjórnar athöfninni. Vörnin fer fram á ensku og er öllum opin.

Um doktorsverkefnið

Línulegt efnahagskerfi sem byggir á því að nýta náttúruauðlindir til þess að framleiða vörur, nota þær í einhvern tíma og farga þeim síðan veldur miklum þrýstingi á líffræðileg ferli jarðarinnar. Slíkt stuðlar meðal annars umhverfishnignun og sífellt alvarlegri náttúruhamförum. Markmið doktorsrannsóknarinnar var að skilgreina umbreytingarleiðir sem stuðla að hringrásarhagkerfi. Það var gert með því að skoða stöðu innleiðingar á rekstrarformi hringrásar í tveimur tilvikum á Íslandi, annarsvegar í byggingariðnaði og hins vegar hjá Sjávarklasann. Starfsemi innan hvers tilviks var greind með hliðsjón af stofnanakenningum, rannsóknum á umbreytingu, kerfishugsu og vistkerfi frumkvöðla, en gagnasöfnun og- greining byggði á eigindlegum rannsóknaraðferðum. Rekstur fyrirtækja byggist á efnislegum aðföngum, tæknilegri getu, vinnuafli, aðfangakeðjum og mörkuðum sem markast af regluverki og öðrum ytri þáttum. Því er ekki nægilegt að skoða starfsemi fyrirtækja þegar verið er að rannsaka innleiðingu á hringrásarhagkerfi, heldur þarf einnig skoða hana með hliðsjón af stofnunum, stjórnarháttum, reglum og samfélagslegum þáttum. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að starfsemi byggingariðnaðarins grunvallas í línulegri nálgun með áherslu á vöxt. Sjávarklasinn er dæmi um tilvik sem tekist hefur að skapa rekstrarlegan grunn fyrir hringrásarnálgun hjá fyrirtækjum sem innan hans starfa. Niðurstöður undirstrika mikilvægi stjórnarhátta, regluverks og efnahagslegra hvata í mótun umbreytingarferla. Í heild leiðir rannsóknin í ljós að hefðbundin stefnumótun nær ekki að knýja fram kerfislægar breytingar sem stuðla að hringrásarhagkerfi. Til að ná árangri þarf að endurskipuleggja stofnanakerfi, móta markaðshvata, endurskipuleggja skipulagsheildir og þróa stjórnarhætti sem stuðla að samvinnu og nýsköpun. Niðurstöðurnar eru framlag til fræðilegra rannsókna á sviði hringrásarhagkerfis og samfélagslegra umbreytinga og geta nýst sem við að þróa hagnýtar leiðbeiningar fyrir stefnumótun fyrirtækja og við opinbera stefnumótun sem stuðla að hraðari umskiptum yfir í hringrásarhagskerfi.

Doktorsvörn: Ágústa Þóra Jónsdóttir
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Viðskiptafræðideild

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil