Árnagarður
Stofa 303
- Aðgangur ókeypis
Pontus Järvstad, doktor í sagnfræði frá Háskóla Íslands, flytur erindið „Deilur um pólitíska einkennisbúninga á Íslandi á millistríðsárunum: Grástakkar, blámenn og mykjugafflar“ í málstofu um félags- og hagsögu á vegum Sagnfræðistofnunar HÍ. Haldið í stofu 303 í Árnagarði, 10. nóvember kl. 16:15-17:15.
Um fyrirlesturinn
Á millistríðsárunum urðu heitar deilur á Alþingi um notkun pólitískra einkennisbúninga á Íslandi. Það var sérstaklega mikið áhyggjuefni meðal framsóknarmanna að notkun einkennisbúninga hjá stjórnmálaflokkunum myndi hafa í för með sér að Ísland færðist nær þeirri öfgastefnu og ofbeldismenningu sem hafði breiðst út um Evrópu. Ólíkt öðrum Norðurlöndum tókst þó aldrei að banna pólitíska einkennisbúninga hér á landi.
Í erindinu verður fjallað um þessa sögu, meðal annars um átök og slagsmál, hvernig einkennisbúningarnir virkuðu sem tæki til að laða ungt fólk inn í stjórnmálahreyfingar og hvernig þeir voru notaðir sem hreyfanlegur áróður. Erindið byggist á bókakafla um efnið sem kemur út á næsta ári í alþjóðlegu ritsafni hjá De Gruyter.
Um fyrirlesara
Pontus Järvstad útskrifaðist með doktorsgráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 2024. Doktorsritgerð hans hlaut dönsku verkalýðssöguverðlaunin sama ár (Arbejderhistorieprisen). Hann lauk nýlega eins árs nýdoktorsstyrk við Rannsóknasetur EDDU á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Samhliða rannsóknum og stundakennslu þar starfar hann einnig sem sögukennari við Menntaskólann við Hamrahlíð.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!