Hvenær
20. október 2026
16:00 til 17:00
Hvar

Veröld - Hús Vigdísar

Heimasvæði tungumála

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

    Rannsóknarstofa Stutt og námsleið í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands standa fyrir dagskrá til heiðurs argentínska rithöfundinum Enrique del Acebo Ibáñez. Enrique er prófessor í félagsfræði við Salvador og Buenos Aires-háskóla í Argentínu og var nýverið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands. Eftir del Acebo liggur umfangsmikið æviverk og meðal þess er að finna fimm söfn örsagna sem nú hafa verið endurútgefin í nýju yfirlitsverki.

    Haldið á heimasvæði tungumála á 2. hæð í Veröld, þriðjudaginn 20. október kl. 16:00. Dagskráin er öllum opin og fer fram á spænsku.

    Dagskrá:

    • 16.00 Kristín G. Jónsdóttir, prófessor, setning og umfjöllun um örsagnaformið.
    • 16.10 Enrique del Acebo Ibáñez segir frá rithöfundaferli sínum, áskorunum og uppskeru.
    • 16.30 Hólmfríður Garðarsdóttir leggur spurningar fyrir gestinn og les þýðingar sínar á nokkrum örsögum hans.
    • 16.50 Spurningar og svör
    • 17.00 Léttar veitingar og óformlegt spjall.
    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili
    - Hugvísindasvið

    Um viðburði innan Háskóla Íslands

    Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil