Aðalbygging
Stofa 220
- Aðgangur ókeypis
Heimspekistofnun Háskóla Íslands hefur fyrirlestraröð haustsins á umræðum um bókina Samræðusiðfræði eftir Vilhjálm Árnason, prófessor emeritus í heimspeki. Jón Bragi Pálsson, umsjónarmaður doktorsnáms á Hugvísindasviði og MA í heimspeki, og Ástríður Stefánsdóttir, prófessor í siðfræði, munu halda stutt erindi um bókina sem Vilhjálmur bregst við.
Haldið í stofu 220 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, fimmtudaginn 24. september kl. 15:00-16:30.
Verið öll velkomin.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!