Hvenær
4. nóvember 2026 til 6 nóvember 2026
12:00 to 22:00
Hvar

Háskólasvæðið

Nánar
  • Öll velkomin
Bæta við í dagatal

Alþjóðadagar eru árviss viðburður í Háskóla Íslands þar sem nemendum gefst tækifæri til að kynna sér ótal möguleika á námsdvöl erlendis, svo sem skiptinám, starfsþjálfun og styttri námsdvalir. Dagarnir varpa jafnframt ljósi á alþjóðlegt starf og fjölbreytileika háskólasamfélagsins og skapa vettvang fyrir íslenska og alþjóðlega nemendur til að hittast og mynda tengsl.

Á dagskrá verða kynningar á námsdvöl erlendis, Alþjóðatorgið, tónlistarviðburður í samstarfi við Iceland Airwaves, pallborðsumræður um inngildingu, hermilíkan Sameinuðu þjóðanna (Model UN) og ýmislegt fleira.


Alþjóðatorgið

Einn af hápunktum Alþjóðadaga er Alþjóðatorgið á Háskólatorgi. Þar geta nemendur kynnt sér tækifæri til námsdvalar erlendis, ólíka áfangastaði og rætt við nemendur sem hafa reynslu af skiptinámi og starfsþjálfun í öðrum löndum.

Á staðnum verða fulltrúar sendiráða, stofnana og félaga, sviða og deilda Háskólans og starfsfólk Alþjóðasviðs, auk fyrrum skiptinema sem miðla af reynslu sinni.

Lukkuhjól og alþjóðlegt smakk

Á torginu geta gestir snúið lukkuhjólinu og freistað gæfunnar - glæsilegir vinningar verða í boði! Þá verður hægt að smakka ýmiss konar góðgæti frá ólíkum heimshornum á kynningarbásunum.

Dagskráin er skipulögð af Alþjóðasviði í samstarfi við alþjóðanefnd Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Skoða dagskrá

Alþjóðadagar 2026
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Alþjóðasvið

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil