Hvenær
3. nóvember 2026
12:00 til 13:00
Hvar

Edda

Fyrirlestrarsalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Sigríður Guðmarsdóttir flytur fyrirlestur í tengslum við sýninguna Heimur í orðum í fyrirlestrasal Eddu kl. 12 þriðjudaginn 3. nóvember.

Hvað gerist þegar innflutt guðfræði mætir íslenskum veruleika? Getur þýdd prédikun frá upphafi þrettándu aldar enn mótað kirkjulega helgisiði og prédikun á Íslandi?
Í erindinu verður íslenska hómilíubókin skoðuð sem sögulegur vitnisburður um prédikun og helgisiði og hún borin saman við prédikanir norsku hómilíubókarinnar og íslensk helgisiðarit.
Bækurnar geyma fyrst og fremst þýddar prédikanir, en stafkirkjuprédikunin, sem talin er af norrænum uppruna, veitir sérstakan samanburðarflöt. Athugað verður hvernig erlendum guðfræðihugmyndum er miðlað á móðurmáli og hvernig tungutak, myndlíkingar og allegórísk túlkun staðfæra sameiginlegan evrópskan prédikunararf.

Í stafkirkjuprédikuninni verður kirkjubyggingin sjálf að guðfræðilegu táknkerfi: altarið merkir Krist, stoðirnar postula og spámenn og klukkurnar kennimenn. Þessi sýn kallar á samtal við ný handbókardrög þjóðkirkjunnar þar sem glímt er við samkirkjulega þætti helgihaldsins, skiljanlegt og inngildandi tungutak, biblíulegt myndmál, þátttöku safnaðarins og jafnvægi, festu og sveigjanleika í helgihaldi.

Erindið spyr því ekki aðeins hvað hómilíurnar merkja í sögulegu samhengi, heldur hvort og þá hvernig þær geti haft áhrif á íslenska helgisiði og prédikunarhætti nú um stundir.

Nánar um fyrirlesara

Sigríður Guðmarsdóttir er prófessor í hagnýtri guðfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknir hennar spanna meðal annars helgisiða- og sálmafræði, guðfræði norðurslóða, femíníska og hinsegin guðfræði, afnýlenduvæðingu og vistguðfræði. Í kennslu og rannsóknum fæst hún við tengsl guðfræði, kirkjulegrar iðkunar, menningar og samfélags.

Altarið, stoðirnar og söfnuðurinn. Hómilíubókin í ljósi hagnýtrar samtímaguðfræði
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Árnastofnun

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil