Aðalbygging
Hátíðasalur
- Aðgangur ókeypis
Sænski þýðandinn, ritstjórinn og rithöfundurinn John Swedenmark er handhafi Vigdísarverðlaunanna 2026. Rektor Háskóla Íslands og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra afhenda verðlaunin við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands 12. nóvember kl. 13-14 og mun John Swedenmark flytja erindi af því tilefni. Erindið er á íslensku og ber yfirskriftina „Tilviljun, nauðsyn og afsjálfvirkni — um lífið og tungumálið“. Erindið er öllum opið.
Vigdísarverðlaunin eru árlega veitt einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar, starfrækt undir merkjum UNESCO, efndu til Vigdísarverðlauna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur vorið 2020, en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar. Stuðningur Vigdísar við mikilvægi tungumála og menningar hefur öðrum þræði einkennt ævistarf hennar, en hún er velgjörðarsendiherra tungumála hjá UNESCO (Mennta, menningar- og vísindastofnun Sameinuðu þjóðanna).
John Swedenmark hlýtur Vigdísarverðlaunin 2026 fyrir framlag sitt í þágu menningar og tungumála með bókmenntaþýðingum sínum. Hann nam norræn tungumál við háskólann í Uppsölum og hefur í áratugi verið helsti núlifandi þýðandi íslenskra bókmennta á sænsku, jafnframt því sem hann þýðir bókmenntir úr fleiri tungumálum, meðal annars samísku, frönsku og ensku. John er einnig mikilvirkur höfundur ritgerða um bókmenntir og menningargagnrýni. Auk rúmlega 50 útgefinna þýðinga liggja eftir hann ritgerðasöfnin Om Kritikmaskinen och andra texter (2009) og Baklängesöversättning och andra texter (2011).
John hefur jafnframt lagt lóð á vogarskálar bókmenntafélaga og tímarita. Árin 2004–2015 var hann menningarritstjóri LO-Tidningen/Arbetet; hann situr í ritstjórn Divan, tímarits um sálgreiningu og menningu; undanfarin 25 ár hefur hann verið sekreterare Gunnar Ekelöf-bókmenntafélagsins, og frá árinu 2015 hefur John setið í ritstjórn tímaritsins Karavan sem gefur út skáldskap frá öllum heimshornum. John Swedenmark hefur verið nefndur sendiherra íslenskra bókmennta í Svíþjóð og sæmdur viðurkenningum á borð við Fálkaorðu Forseta Íslands (2018), hlotið þýðingaverðlaun Sænsku akademíunnar (2019), heiðursverðlaunin Orðstír (2020), verðlaun Letterstedtska félagsins (2021), og þýðingaverðlaun akademíunnar Samfundet De Nio (2026).
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!