Norræna húsið
- Aðgangur ókeypis
Áfallastjórnun á Norðurlöndunum: Stjórnarhættir og leiðtogahæfni í COVID-19
Ráðstefnan markar útgáfu bókarinnar "Nordic Crisis Management: Well-Performing Governance During COVID-19", sem Ásthildur Elva Bernharðsdóttir, prófessor við Háskólann á Bifröst, og Baldur Þórhallsson, prófessor við Háskóla Íslands, ritsýra. Í bókinni er í fyrsta sinn gerður kerfisbundin samanburður og greining á því hvernig Norðurlöndin fimm, ásamt Grænlandi og Færeyjum, brugðust við COVID-19 faraldrinum. Litið verður til þess hvaða lærdóm megi draga af þessari reynslu, hvernig hún nýtist við stjórnun næstu áfalla og hvort norrænir stjórnarhættir búi nægilega vel í haginn fyrir næstu áföll í síbreytilegum og óvissum heimi.
Á ráðstefnunni koma saman fræðimenn frá öllum Norðurlöndunum sem tekið hafa þátt í rannsóknarverkefninu "Áfallastjórnun í COVID-19 faraldrinum: Stjórnarhættir og leiðtogahæfni". Í verkefninu hefur verið rannsakað hvernig stærð stjórnsýslu, stjórnskipulag og stofnanaleg uppbygging, ásamt menningu, mótuðu áfallastjórnun í COVID-19 faraldrinum.
Vinsamlegast skráið þátttöku hér: https://forms.cloud.microsoft/e/awMYFvMkVK
Ráðstefnan fer fram á ensku og eru öll velkomin.
Sjá dagskrá hér: https://ams.hi.is/is/fr%C3%A9ttir/afallastjornun-a-nordurlondunum-stjornarhaettir-og-leidtogahaefni-i-covid-19/
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!