Edda
Fyrirlestrasal
- Aðgangur ókeypis
Níunda Ólafsþing verður haldið fyrsta vetrardag, laugardaginn 24. október, í fyrirlestrasal Eddu við Arngrímsgötu. Þingið er að þessu sinni einnig heiðursmálþing í tilefni sjötugsafmælis Jóns Axels Harðarsonar, prófessors við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, 2. október 2026.
Félagið Mál og saga stendur að ráðstefnunni í samstarfi við Málvísindastofnun Háskóla Íslands. Allir velkomnir.
Dagskrá
- 9:25–9:30 Þingið sett
- 9:30–10:00 Veturliði Óskarsson: Þau tíðkast nú hinu breiðu spjótin
- 10:00–10:30 Alexander Pfaff: Frá nafngervingu til lýsingarorðs: þróun veikrar (lýsingarorðs-) beygingar frá frumindóevrópsku til norrænu
- 10:30–11:00 Kaffihlé
- 11:00–11:30 Teresa Dröfn Freysdóttir Njarðvík: Þýðing og aðlögun Saxo Grammaticus í íslenskum heimildum á 16. og 17. öld
- 11:30–12:00 Yelena Sesselja Helgadóttir: Um skottið á Skjóna og fleiri undur
- 12:00–12:30 Kristján Árnason: Um skáldskaparfræði Jóns Svefneyings
- 12:30–13:30 Hádegishlé – Súpa og brauð verður til sölu í kaffihúsinu Ými í Eddu
- 13:30–14:00 Helgi Skúli Kjartansson: Borðleggjandi? Eða bara athugandi?
- 14:00–14:30 Antonio Costanzo: Aṭṭhakavaggo og pāḷi: fornindóevrópsk málfræði í ljósi varðveizlu og miðlunar
- 14:30–15:00 Sigríður Sæunn Sigurðardóttir & Þórhallur Eyþórsson: Indóevrópskt vetrarævintýri
- 15:00–15:30 Kaffihlé
- 15:30–16:00 Þorgeir Sigurðsson: Hvað meinti málfræðingurinn? Af hverju vildi hann skrifa <earn> en ekki <iarn>?
- 16:00–16:30 Már Jónsson: Ex originali. Bjargvættur skjala á Sólheimum í Sæmundarhlíð
- 16:30–17:00 (1) Guðrún Þórhallsdóttir: hlýja og hlóa: Jón Axel og orðsifjafræðin – (2) Katrín Axelsdóttir: Bíll í oss
- 17:00 Ráðstefnuslit og léttar veitingar
Hægt er að kynna sér ágrip erinda á vefsíðu Máls og sögu.
Vakin er athygli á: Nýjar rannsóknir í málgerðarfræði – Utan gátta á Ólafsþingi: sérstakur viðburður daginn fyrir Ólafsþing.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!