Eva Marín Hlynsdóttir
Stjórnmálafræðideild
Ég er prófessor í opinberri stjórnsýslu við Stjórnmálafræðideild. Rannsóknir mínar hafa fyrst og fremst beinst að stjórnun og stjórnmálum á sveitarstjórnarstiginu, s.s. að stöðu kvenna á sveitarstjórnarstiginu, samskiptum stjórnmála og stjórnsýslu, leiðtogum innan opinbera kerfisins og stjórnsýslulegrar getu smáríkja. Ég er meðlimur í nokkrum evrópskum rannsóknarhópum um málefni sveitarfélaga annars vegar og hins opinbera hins vegar en sit einnig í norrænum rannsóknarhóp um framkvæmdastjóra sveitarfélaga. Ég sit í fastanefnd ECPR um Sveitarstjórnarmál og hef verið meðlimur í sérfræðingaráði Sveitarstjórnarþings Evrópuráðsins fyrir hönd Íslands síðan 2018. Ég hef einnig komið að ráðgjöf um málefni sveitarfélaga og sveitarstjórnarstigsins innanlands og í tengslum við aðild mína að sérfræðingaráði Sveitarstjórnarþingsins.
- 2015 Doktorspróf Háskóli Íslands Doktorsnám
- 2011 MPA Háskóli Íslands MPA með áherslu á stjórnsýslurétt
- 2009 Starfsréttindanám Háskóli Íslands Kennsluréttindi
- 2004 MA Háskóli Íslands Meistarapróf í stjórnmálafræði
- 2001 BA Háskóli Íslands Stjórnmálafræði