text

Erlingur Sigurður Jóhannsson

Prófessor Íþrótta og heilsufræðum.
Menntavísindasvið
Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda
Tölvupóstur
Sími
Aðsetur
Saga -  S-508
Sérsvið
Ágrip

Erlingur Jóhannsson er prófessor í íþrótta og heilsufræði á Menntavísindasviði, HÍ. Rannsóknir Erlings tengjast lýðheilsu, velferð, lifnaðarháttum fólks og íþróttastarfsemi. Erlingur hefur stýrt fjölmörgum umfangsmiklum rannsóknarverkefnum á undanförnum árum bæði íhlutunarrannsóknum og langtímarannsóknum. Vettvangur þessara verkefna er fjölbreyttur en þau hafa verið framkvæmd í skólakerfinu, atvinnulífinu og meðal almennings. ÍHLUTUNARRANNSÓKNIR Meðal íhlutunarrannsókna sem Erlingur hefur stýrt eru: I. Lífsstíll 7 til 9 ára barna – Íhlutunarrannsókn til bættrar heilsu, II. Heilsurækt eldri aldurshópa - Íhlutunarrannsókn til bættrar heilsu og betri lífsgæða. III. Heilsa sjómanna – Íhlutunarrannsókn á hreyfingu og mataræði. Markmið þessara íhlutunarrannsókna var að skoða hvort hægt væri að auka hreyfingu, bæta, mataræði og almennt breyta lifnaðarháttum fólks. Niðurstöður sýna að mögulegt er að hafa marktæk áhrif á hreyfingu, mataræði og lifnaðarhætti fólks á öllum aldri með réttum og vel útfærðum aðgerðum. Má því segja að með réttum fyrirbyggjandi aðgerðum er hægt að bæta heilsu og líðan fólks. NÝSKÖPUN Fullyrða má að hagnýtt gildi og nýsköpun þessara rannsóknaverkefna er mjög mikið og þau er mikilvægi í þeirri viðleitni að bæta heilsu fólks í nútíma samfélagi. Atriði sem hafa komið í kjölfar þessara íhlutuna rannsókna. Sjá nánar: I. Lífsstíll 7 til 9 ára barna – Íhlutunarrannsókn til bættrar heilsu • Niðurstöður rannsóknar nýttar af stjórnvöldum til koma á Heilsueflandi grunnskólum á Íslandi. • Settar voru fram svefnráðleggingar fyrir börn og ungmenni byggða á niðurstöðum rannsóknanna. • Hlaðvarpið Heilsuhegðun Ungra Íslendinga vakti mikil athygli en á þeim vettvangi voru niðurstöður rannsóknarinnar rædd og settar fram tillögur að úrbætum. II. Heilsurækt eldri aldurshópa - Íhlutunarrannsókn til bættrar heilsu og betri lífsgæða, • Mjög umfangsmikil rannsókn sem kom af stað mikilli vakningu meðal eldra fólks um mikilvægi heilsueflingar og velferðar eldra fólks. III. Heilsa sjómanna – Íhlutunarrannsókn á hreyfingu og mataræði. • Mjög umfangsmikil rannsókn sem kom af stað mikilli vakningu meðal sjómanna um mikilvægu líkamlegra,- andlegrar sem og félagslegra heilsu. LANGTÍMARANNSÓKNIR Erlingur Jóhannsson stýrir tveim íslenskum mjög umfangsmiklum langtímarannsóknum: • Heilsuferðalagið, þátttakendur eru einstaklinga fæddir 1988. Gögnum hefur um þessa einstaklinga verið safnað í þrígang þ.e. 2003/2004, 2011/2012 og 2024/2025. Website: https://www.unak.is/is/rannsoknir/rannsoknir-vid-ha/heilsuferdalagid • Heilsuhegðun Ungra Íslendinga, þátttakendur eru fæddir árið 1999 og hefur gögnum um þessa einstaklinga verið safnað við 7, 9, 15 og 17 ára aldur. Gögnum var fyrst safnað 2006, 2008, 2015 og síðast 2017. Website: https://heilsuhegdun.hi.is/ Markmið þessara langtímarannsókna er að skoða stöðu og langtímabreytingar á heilsufari, hreyfingu, þreki, svefni, andlegri líðan, námsárangri og lifnaðarháttum ungra Íslendinga. NÝSKÖPUN: Fullyrða má að gildi og nýsköpun þessara langtíma rannsóknaverkefna er mjög mikil og þau er mikilvægi í þeirri viðleitni afla upplýsinga um heilsu og velferð fólks í nútíma samfélagi. Þannig verður með meiri vissu hægt að gripa til fyrirbyggjandi lýðheilsu aðgerða.

Námsferill
  • 1995 Ph.D. Norges Idrettshögskole Doktorsnám í Íþrótta og heilsufræði
  • 1990 Meistarapróf Norski Íþróttaháskólinn Meistaraprófsgráða í íþróttafræðum. Stimulert glukoseopptak i ulike fibertyper i rottemuskler.
  • 1987 BS Oslóarháskóli BS heilsu- og íþróttalíffræði sem sérgrein
  • 1983 Óslóarháskóli Nám í efnafræði
  • 1982 Stúdent MA Stúdent úr náttúrufræðideild
Námskeið kennd 2025 - 2026
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil