Rúnar Unnþórsson
Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, kennsla
Eftir samkomulagi - vinsamlegast sendið tölvupóst.
Mín vinna miðar að því að endurbæta kerfi, gera þau hagkvæmari og skilvirkari (frammistöðuverkfræði). Gera heiminn okkar og líf okkar allra betra með verkfræðilegum lausnum. Ég hef komið að fjölmörgum mismunandi verkefnum - frá skaðlausum ástandskoðunaraðferðum, skynskiptum, sýndarhljóðvist, og yfir í mismunandi orkutengd verkefni. Ég hef notað Acoustic Emissions til að fylgjast með ástandi koltrefjastyrktra fjölliða (CFRP) í fjölása þreytuprófunum og einnig til að ástandsmeta ál og lithium rafhlöður. Ég stýrði verkefnum þar sem a)hannaður var hljóð-titringsbúnaður fyrir sjónskerta einstaklinga, b) hönnuð var titringslausn til að bæta tónlistaránægju kuðungsígræðsluþega. Ég hef verið að vinna að verkefnum sem þróa sýndarhljóðvist til að fá sem raunhæfast hljóðumhverfi í sýndarveruleika. Orkutengdu verkefnin eru fjölmörg. Ég hef hannað kerfi til að endurnýta afgangshita frá húshitun til að hita jarðveg fyrir plönturæktun - þannig draga úr varmamengun og lengja ræktunartímann. Ég hef komið að rannsóknum og þróun á varmarafkerfum knúnum af hita frá hitaveiturörum. Ég hef einnig unnið að nýtingu lífmassa með gösun og pýrólýsu - útbúið og þróun samsetts varma- og orkukerfis (CHP). Í dag er ég að vinna að endurnýtingu notaðra rafhlaðna (aðallega úr rafbílum) yfir í kyrrstæðar orkugeymslur t.d. að nota þær til að draga úr olíunotkun dísilrafalla. Ég er einnig að skoða hvernig best er hægt að samþætta þessi kerfi með sólarrafhlöðum til að bæta sjálfbærni.
- 2013 Postgraduate diploma Háskóli Íslands Kennslufræði háskóla
- 2008 Ph.D. Háskóli Íslands Vélaverkfræði
- 2002 M.Sc. Háskóli Íslands Vélaverkfræði
- 1997 cand. scient. Háskóli Íslands Vélaverkfræði
- VÉL606M - Hönnun og smíði rafknúins kappakstursbíls - hluti B
- IÐN405G - Hönnun og framkvæmd tilrauna
- IÐN441L - Lokaverkefni
- VÉL503M - Hönnun og smíði rafknúins kappakstursbíls - hluti A
- UAU111F - Endurnýjanleg orka: inngangur
- IÐN303G - Tæknileg kerfi
- IÐN128F - Mannlegir þættir í verkfræðilegri hönnun
- IÐN132F - Verkefni í Nýsköpunarstjórnun